Tvær af okkar efnilegustu stúlkum í GKG, þær Særós Eva Óskarsdóttir og Gunnhildur Kristjánsdóttir, taka þátt á næstu dögum í Irish girls open strokeplay mótinu, sem fer fram á Roganstown vellinum í Dublin á Írlandi. Leiknar eru 54 holur á tveimur dögum, en fyrri daginn eru leiknar 36 holur, þar sem 50 efstu komast áfram í lokahringinn daginn eftir. Stúlkurnar hafa æft vel í vetur í Kórnum, og fara í mótið í kjölfarið á æfingaferð afrekshópa GKG, og koma því vel stemmdar til leiks. Einnig taka þátt í mótinu þrjár stúlkur úr Keili, þær Sara Margrét Hinriksdóttir, Anna Sólveig Snorradóttir og Hafdís Jóhannsdóttir.
Hægt er að fylgjast með mótinu hér.
Við óskum stelpunum okkar alls hins besta!