Skráning á sumaræfingar GKG hafin

Skráning á sumaræfingar barna og unglinga, sem eru félagar í GKG, er hafin og má sjá æfingatöfluna með því að smella hér. Þessi tafla gildir frá 14. júní – 20. ágúst. Vonandi henta tímasetningarnar sem flestum. Æfingar verða þrisvar í viku, þ.e. 2×1 klst og 1×2 klst spilæfing. 

Skráning fer […]

By |18.05.2010|Categories: Fréttir almennt|

Félagsskírteini

Ágætu félagsmenn

Félagskírteinin 2010 eru tilbúin og óskast þau sótt í golfverslunina.  Þeir félagar sem enn ekki hafa greitt eða samið um greiðslu, eru beðnir um að gera skil strax.
Skrifstofan er opin virka daga frá 8 til 4. Eftir fáeina daga verða ógreidd félagsgjöld gerð óvirk.

Félagsgjöldin 2010

Ágætu félagsmenn, nú er liðinn tíminn sem gefinn var félagsmönnum til að ganga frá greiðslu á félagsgjöldum,eindagi félagsgjalda hjá þeim sem fengu senda greiðsluseðla er liðinn. Þeir sem ekki hafa greitt árgjaldið eða samið um greiðslur eiga það nú á hættu að verða teknir út af félagaskrá GKG og lokað […]

Vinnudagar GKG

Ágætu félagar í GKG.

Fyrirhugað er að hafa tvo vinnudaga í ár. Þriðjudaginn 4. maí og miðvikudaginn 5. maí. Verður þessum tveim dögum verður skipt milli vallarhluta eða öllu heldur milli bæjarfélaga. Þann 4. maí verður unnið garðabæjar meginn og þann 5. maí verður unnið í […]

Skýrsla íþróttastjóra á félagsfundi GKG

Félagsfundur apríl 2010  – Punktar frá Íþróttastjóra

Unglinga- og afreksstarfið

Þátttaka hefur vaxið jafn og þétt yfir sumarið, um 100 börn og unglingar sem æfa núna á vetraræfingum. Gerum ráð fyrir 150-180 krökkum í sumar, auk 400 barna á barnanámskeiðum GKG. Fyrir þennan mikla fjölda […]

By |27.04.2010|Categories: Fréttir almennt|

Æfingaferð GKG afreksunglinga til Spánar 5.-12. apríl 2010

Líkt og undanfarin ár var farið í æfingaferð til útlanda til að undirbúa afrekskylfinga félagsins fyrir sumarið. Ferðin stóð þeim kylfingum til boða sem eru í afrekshópum unglinga og meistaraflokkum karla og kvenna. Því miður hentaði tímasetningin illa fyrir meistaraflokkskylfingana og fór aðeins einn úr þeirra röðum, en tólf úr unglingahópunum. Að auki voru þjálfararnir Derrick Moore og undirritaður. Fimm foreldrar nýttu tækifærið og slógust með í för. Eins og áður leggur GKG einungis til tíma þjálfarana, en allur kostnaður er greiddur af þátttakendum, og söfnuðu krakkarnir fyrir ferðinni með ýmsum hætti frá því í nóvember. Mæður þriggja þátttakenda, þær Valgerður, Eva og Dröfn sáu um skipulagningu á fjáröflunum og fá þær miklar þakkir fyrir það.

By |20.04.2010|Categories: Fréttir almennt|

Lokun valla.

Félagar athugið.

Vegna þess hversu mikið næturfrost var í nótt og ekki stefnir í að það nái að fara úr í dag og næstu daga hefur vallarstjóri ákveðið að loka inn á sumarflatir í það minnsta þessa vikuna.

Hægt er að spila vetrarvöllinn á mýrinni, Vetrarflatir og vetrarteigar eru þar til staðar.

Með […]

Go to Top