Svalamótaröðin – vins. sýnið biðlund
Í dag hefst fyrsta mótið af fjórum í Svalamótaröðinni. Metþátttaka er í mótið þannig að gróskan og áhuginn er mikill hjá framtíðarkylfingum GKG. Ræst er út frá 15:30 – 18:00 og eru kylfingar sem fara út á eftir vinsamlegast beðnir um að sýna keppendum biðlund og þolinmæði.
Um helgina lauk 3. stigamóti ársins í Arion banka mótaröð GSÍ. Leikið var á Strandarvelli við Hellu. GKG kylfingar stóðu sig mjög vel og sigraði Ragnar Már Garðarssson í flokki 15-16 ára, lék á 66 höggum á seinni keppnisdegi og sigraði […]