Miðvikudagsmótaröð GKG 2008 lokið

Miðvikudagsmótaröð GKG 2008 lauk nú fyrir stuttu og eru úrslit ljós. Efstu fimm kylfingar í flokki kvenna og karla hljóta glæsileg verðlaun fyrir árangur sumarsins, en meðal verðlauna eru Yes Pútterar, Titleist burðarpokar og fleiri golfvörur. Verðlaunin verða afhend á lokahófi GKG, Bændaglímunni, eftir rúma viku og því mikilvægt fyrir […]

By |19.09.2008|Categories: Fréttir almennt|

Lokamót GKGkvenna 14. september s.l., úrslit

GKGkonur mættu með góða skapið á Vífilsstaðavöllinn sunnudaginn 14. september s.l. Vegna óvissu um veður var ákveðið að leika eingöngu 9 holur. Leikfyrirkomulagið var Texas Scramble. Um kvöldið var svo lokahóf GKGkvenna, verðlaun afhent og borðaður mjög góður matur. Þrátt fyrir að lokahófið hafi verið opið öllum GKGkonum mættu eingöngu tvær konur sem ekki höfðu verið skráðar í mótið. Í mótið mættu 22 konur.

Smellið á "Lesa Meira" hér fyrir neðan til að sjá úrslit mótsins.

Kvennanefndin þakkar öllum sem hafa stutt okkur í sumar. Þá þakkar nefndin starfsfólki GKG fyrir þeirra samstarf og Gunnari og Hilmari og þeirra fólki fyrir gott og notalegt samstarf í sumar. GKGkonur fylgist með heimasíðu GKG og skráið netfangið ykkar hjá GKG svo hægt sé að senda ykkur tölvupóst um helstu viðburði GKGkvenna.

- Kvennanefndin

By |18.09.2008|Categories: Fréttir almennt|

Stigamóti unglinga lokið

Núna rétt í þessu lauk síðasta stigamóti unglinga sumarsins hér á Vífilsstaðavellinum okkar í GKG. Unglingarnir spiluðu tvo hringi um helgina og sýndu góð tilþrif. Veðrið lét heldur ekki sitt eftir liggja og reyndi að stela senunni, en kylfingum var boðið upp á frábært […]

By |07.09.2008|Categories: Fréttir almennt|

Lokamót GKG kvenna 2008

Lokamót GKG-kvenna verður sunnudaginn 14. september n.k. og hefst kl. 10:00 og lokaskráning er kl. 12:30. Leiknar verða 18 holur á Vífilsstaðavelli. Leikfyrirkomulagið verður Texas Scramble og leika tvær og tvær saman í liði og er um punktakeppni að ræða. Punktar eru reiknaðir út eftir ákveðnum reglum um Texas Scramble.

 

Skráning […]

By |07.09.2008|Categories: Fréttir almennt|

Staðan í Miðvikudagsmótaröðinni eftir sex mót

Sjötta mót Miðvikudagsmótaraðar GKG 2008 fór fram síðastliðinn miðvikudag, 27. ágúst. Eftir þetta mót er aðeins eitt mót eftir og því hörku spenna hlaupin í heildarkeppnina. Síðasta mótið verður  þann 10. september næstkomandi og mikilvægt fyrir alla kylfinga að mæta og reyna að tryggja sér eitt af efstu fimm sætunum […]

By |29.08.2008|Categories: Fréttir almennt|

Sjötta Miðvikudagsmótið á morgun

Á morgun, miðvikudaginn 27. ágúst, fer fram sjötta og næst síðasta mót í Miðvikudagsmótaröð GKG þetta árið. Nú fara línur brátt að skýrast og verður spennandi að sjá hvaða kylfingar munu koma til með að ná bestu fjórum hringjunum punktalega séð þetta sumarið […]

By |26.08.2008|Categories: Fréttir almennt|

Hatta- og kjólamótið 2008

Þriðjudaginn 26. ágúst n.k. verður Hatta- og kjólamótið.  Konur eru hvattar til að mæta í kjólum og með hatta.  Leiknar verða 9 holur í Vetrarmýrinni og veitt verða verðlaun í lok dagsins.  Viðurkenningar verða veittar fyrir smartasta hattinn og kjólinn, nándarverðlaun á 2. og 9. holu.   Þá fá þær konur […]

By |25.08.2008|Categories: Fréttir almennt|

Frá öldunganefnd

Eftirfarandi er framundan í öldungastarfinu:

 

Miðvikudaginn 27. ágúst verður keppni um kaffi og kleinu frá 9,30.

Fjórir spila saman, tveir í hvoru liði. Lægsta skor gefur 1 punkt, samanlagt 1 og fugl gefur 1. Þeir sem tapa bjóða hinum í kaffi og kleinu.

Skilið skorkortum í kassa.

 

Laugardaginn 30. ágúst  er lokamót […]

By |22.08.2008|Categories: Fréttir almennt|

Sumaræfingum að ljúka – haustæfingar hefjast

Nú eru flestir skólar landsins að hefja starfssemi sína og með því lýkur hinum reglulegu sumaræfingum unglinga- og afrekshópa GKG – síðustu æfingarnar verða næstkomandi föstudag 22. ágúst.

 

Eins og alltaf þá taka við haustæfingar sem standa frá og með næsta mánudegi 25. ágúst til 18. september.

 

Tafla yfir æfingarnar […]

By |21.08.2008|Categories: Fréttir almennt|

Nýliðanámskeið fellur niður – reglufundur í næstu viku

Vegna dræmrar þátttöku hefur verið ákveðið að fella niður nýliðanámskeiðið sem fara átti fram í þessari viku. Reglunámskeiðið sem átti að vera hluti af námskeiðinu auk þess að vera öllum opið og halda átti í kvöld fellur því niður af þessum sökum.

 

Í staðinn verður reglufundur haldinn í golfskálanum á miðvikudaginn […]

By |19.08.2008|Categories: Fréttir almennt|
Go to Top