Rauðvínskvöld GKG kvenna næstkomandi föstdagskvöld

Næstkomandi sunnudag, 22.03, verður þriðja púttmót vetrarins haldið í Kórnum.
Spilaðir verða tveir hringir frá kl. 12-15 og telur betra skorið.
Þáttökugjald er 500 kr og er öllum heimilt að taka þátt, sama í hvaða klúbb þeir eru, […]
Laugardaginn 21. mars verða haldin tvö námskeið fyrir háforgjafarkylfinga.
Námskeiðin verða í Kórnum og eru frá 13:30-14:45 og 14:45-16:00.
Þáttökugjald er 1.000 kr per námskeið.
Afrekskylfingar GKG munu sjá um námskeiðið og renna tekjur af þeim til fjáröflunar þeirra vegna æfingaferðar í vor.
Skráning fer fram á skrifstofu GKG hjá :
Alexander skrifstofustjóra, alli@gkg.is […]
Unglinganefnd GKG stendur fyrir páskabingói laugardaginn 21. mars kl. 14.00 í golfskála GKG. Þessi viðburður er skipulagður sem partur af almennu félagsstarfi okkar en jafnframt er þetta liður í söfnun afreksunglinganna sem eru að fara í æfingaferð til Essex þann 4. apríl næstkomandi.
Margir góðir vinningar verða í boði og […]
Nú eru komnar nýjar myndir frá árinu 2006 í myndasafnið hér á gkg.is. Kennir þar ýmissa grasa og eflaust gaman fyrir félaga að skoða gamlar myndir. Hægt er að nálgast myndasafnið okkar í hlekkjalistanum hér til vinstri eða með því að smella hér. Ef einhverjir luma á gömlum eða […]
Sælir félagar, vegna mikillar eftirspurnar hefur verið bætt við tveimur námskeiðum í viðbót fyrir háforgjafarkylfinga. Þau verða 28. febrúar og 7. mars frá 13:30 – 14:45.Skráning fer fram hjá mér, Alexander, á netfanginu alli@gkg.is eða í síma 565-7373.Námskeiðsgjald er 1.000 kr sem greiðast á námskeiðinu.
Í dag var opnað glæsilegt nýtt myndasafn hér á gkg.is. Hægt er að nálgast það með því að smella á "Myndasafn" í hlekkjalistanum til vinstri.
Búið er að setja inn myndi sem teknar voru á klúbbmyndavélina síðastliðið sumar og eru þær allmargar. Einnig hvetjum við félaga að senda inn […]
Eins og veðurspáin er næstu daga hefur verið ákveðið að loka inná sumarflatir og teiga. Félögum er bent á að vetrarhringurinn á mýrinni er opinn og verður opinn í allan vetur.
Ef veður leyfir eftir helgina munum við að sjálfsögðu opna aftur inná flatirnar.
Kveðja Vallarstjóri