Óvissuferð GKG kvenna þriðjudaginn 12. ágúst næstkomandi

Þriðjudaginn 12. ágúst n.k. verður óvissuferð GKG-kvenna.   Skráning fer fram á töflu í golfskálanum eða með því að hringja í rástímaskráningu 565-7373 eða 897-7773.  Mæting er kl. 13:00 á Vífilsstaðavöll við golfskálann.  Lagt verður af stað kl. 13:30.  Gjaldið er kr. 2.500 og í gjaldinu eru innifalin vallargjöld, rútuferð og  […]

By |06.08.2008|Categories: Fréttir almennt|

Sveitir GKG tilkynntar

Þjálfarar klúbbsins hafa nú valið í karla- og kvennasveit GKG fyrir sveitakeppnir GSÍ sem fram fara 8.-10. ágúst næstkomandi. Karlasveitin á titil að verja og keppir á Garðavelli á Akranesi á meðan kvennasveitin etur kappi við stöllur sínar hér á heimavelli. Sveitirnar skipa eftirfarandi:

 

Karlasveit

Alfreð Brynjar Kristinsson
Birgir Leifur Hafþórsson
Brynjólfur […]

By |31.07.2008|Categories: Fréttir almennt|

Barnateigar á Mýrinni

Ágætu félagar

 

Nú hafa verið sett upp teigmerki fyrir yngstu kynslóðina , sem eru að stíga sín fyrstu spor í golfíþróttinni, á brautirnar á Mýrinni. Teigarnir verða notaðir fyrir spilæfingar hjá börnum í GKG sem og á Svalamótaröðinni sem er barnamótaröð GKG sumarið 2008.
Teigarnir eru staðsettir inn á brautum […]

By |30.07.2008|Categories: Fréttir almennt|

Kepnni GKGkvenna og GÖkvenna á Vífilsstaðavellinum 15. júlí 2008 – úrslit

Þriðjudaginn 15. júlí 2008 komu GÖkonur í heimsókn til GKGkvenna.  Leiknar voru 18 holur á Vífilsstaðavellinum og var um punktamót að ræða.  Í mótinu tóku þátt 33 konur frá GKG og 5 konur frá GÖ.  Keppnisfyrirkomulagið er með þeim hætti að fjórar efstu konurnar (í punktakeppni) frá hvorum klúbbi mynda keppnislið.

 

Hægt er að sjá úrslit mótsins með því að smella á „Lesa meira“ hér að neðan.

 

Næsta mót hjá GKG konum er óvissuferðin þriðjudaginn 12. ágúst n.k. og verður lagt af stað frá Vífilsstaðavelli kl. 13:30, mæting kl. 13:00.  Ferðin verður auglýst nánar eftir verslunarmannahelgi.  Listi verður í PROSHOP og er unnt að skrá sig strax.

 

Kvennanefndin

 

By |29.07.2008|Categories: Fréttir almennt|

Fjórða Miðvikudagsmótið á morgun

Á morgun er fjórða Miðvikdudagsmót ársins af sjö. Mæting kylfinga hingað til hefur verið frábær og því hvetjum við alla til að mæta á morgun, enda spáir góðu veðri. Mótið telur að sjálfsögðu í heildarkeppninni, en bestu fjögur mót sumarsins (af þeim sjö sem eru […]

By |29.07.2008|Categories: Fréttir almennt|

Bylgjan Open 2008

Núna rétt í þessu lauk golfmótinu Bylgjan Open 2008 hér á Vífilsstaðavelli. Mótið var stórskemmtilegt, en mótið var tveggja daga punktakeppni með niðurskurði eftir fyrri daginn. Veðrið stríddi kylfingum töluvert fyrri daginn en þann seinni sýndu veðurguðirnir á sér betri hliðarnar fram eftir degi. Mótið var allt hið veglegasta, en veitt voru glæsileg verðlaun fyrir fyrstu fimm sætin, nándarverðlaun á öllum par 3 holum auk verðlauna fyrir lengsta upphafshögg á 12. braut. Þá voru ógrynnin öll af vinningum sem gengu út í skorkortaútdrætti.

 

Leikar fóru þannig að Berglind Hafliðadóttir hafði sigur með 71 punkt, 35 punkta fyrri daginn og 36 punkta seinni daginn. Fékk hún val um vinninga og valdi sér að fá ferð fyrir einn til Sotogrande í Portúgal í haust á vegum Sumarferða. Annar varð Einir Logi Eiðsson. Þá datt Örn Arnarsson í lukkupottinn þegar hann hlaut  sömu ferð og Berglind í verðlaun með skorkortaúdrætti. Listi yfir verðlaunahafa er  hægt að sjá með því að smella á „Lesa meira“ hér að neðan.

 

Bylgjan og GKG þakka kærlega fyrir sig og hlakka til að sjá kylfinga aftur að ári.

By |27.07.2008|Categories: Fréttir almennt|

Fyrri degi Bylgjan Open að ljúka

Nú rétt í þessu var stormasömum fyrri degi á Bylgjan Open 2008 að ljúka þegar síðasta holl kom í hús.  Sterkir vindar blésu um Vífilsstaðavöll í dag og hafði það áhrif á spilið og skorin.  Eftir fyrri daginn leiðir Berglind Hafliðadóttir mótið með 35 punkta,  með tveggja punkta forskot á […]

By |26.07.2008|Categories: Fréttir almennt|

Haukur V Bjarnason sigraði aldurinn

Í nýliðnu meistaramóti GKG gerðist sá fáheyrði atburður að keppandi í flokki karla 70 ára og eldri lék seinasta hringinn á 78 höggum. Er sá glæsilegi hringur kannski ekki í frásögur færandi nema ekki væri fyrir þá staðreynd að kylfingnum sem það tókst, Hauki V Bjarnasyni, er 79 ára gamall (elsti keppandinn á meistaramótinu) og fyllir áttunda tuginn í haust. Haukur afrekaði sem sagt að „sigra eigin aldur“ með einu höggi. Er hann í tiltölulega fámennum hópi sem það hafa afrekað og vildi gkg.is heyra í kappanum og forvitnast aðeins um golfið og hann.

 

Smellið á "Lesa Meira" til að fræðast meira um Hauk


By |22.07.2008|Categories: Fréttir almennt|

Öldungastarf í fullum gangi

Öldungar í GKG eru hvattir til að kíkja á „Öldungahornið” sem er efst í horninu hægra megin á auglýsingatöflu í golfskálanum. Þar eru alltaf upplýsingar um það sem er að gerast hverju sinni ásamt úrslitum úr síðustu spiladögum.

Öldungaspil næsta miðvikudag, 23. júlí, er punktakeppni. Munið að skila inn […]

By |21.07.2008|Categories: Fréttir almennt|
Go to Top