Sumaræfingar GKG dagana 23.-25. júlí

Vegna Íslandsmótsins í höggleik dagana 23.-25. júlí í Vestmannaeyjum verða þjálfarar klúbbsins fjarverandi við keppni.

 

Þessa daga falla niður allar formlegar æfingar. Hinsvegar verður starfsmaður á æfingasvæðinu þessa daga á milli 10-12 . Þar geta krakkarnir komið og fengið fría æfingabolta til að slá undir eftirliti.

 

Með kveðju

Þjálfararnir

By |21.07.2008|Categories: Fréttir almennt|

Meistaramóti GKG 2008 lokið

Sigmundur Einar Másson og María Málfríður Guðnadóttir urðu klúbbmeistarar GKG í karla og kvennaflokki á nýliðnu meistaramóti og var Sigmundur að tryggja sér titilinn fjórða árið í röð. Sigrarnir hjá þeim báðum voru mjög öruggir, en Sigmundur sigraði með 9 högga mun og María með 13 höggum. Frábær árangur hjá […]

By |15.07.2008|Categories: Fréttir almennt|

Þriðja Miðvikudagsmótið á morgun

Á morgun er þriðja Miðvikdudagsmót ársins, en fyrstu tvö mótin voru haldin þá 18. júní og 2. júlí síðastliðna. Mæting kylfinga hingað til hefur verið frábær og því hvetjum við alla til að mæta á morgun, enda spáir góðu veðri. Mótið telur að […]

By |15.07.2008|Categories: Fréttir almennt|

GKG-konur keppa við GÖ konur á Víiflsstaðavellinum

Þriðjudaginn 15. júlí n.k. keppa GKG-konur við GÖ-konur á Vífilsstaðavellinum.  Leiknar verða 18 holur.  Skráning fer fram á golf.is og er fyrsti rástími kl. 15:30 og sá síðasti kl. 18:00.  GÖ konur greiða kr. 2.500 í vallargjald til GKG og GKG konur greiða kr. 1.500 með peningum til kvennanefndar GKG […]

By |14.07.2008|Categories: Fréttir almennt|

Lokahóf meistaramóts GKG

Meistaramóti GKG fer nú óðum að ljúka, en það hefur staðið yfir frá sunnudeginum. Kylfingar hafa reynt sig í blíðskaparveðri og notið þess að spila golf á okkar flotta velli. Glæsileg tilþrif og góð skor hafa sést, en það besta hingað til náði Guðjón Ingi Kristjánsson er hann spilaði annan […]

By |11.07.2008|Categories: Fréttir almennt|

Niðjamót GKG á morgun

Hið árlega niðjamót GKG fer fram laugardaginn 5.júlí.

Þetta er stærsti viðburðurinn í fjölbreyttu fjáröflunarstarfi afreksunglinga klúbbsins og hvetjum við því mömmur og pabba, ömmur og afa til þess að mæta með niðjum sínum og eiga góða stund saman við skemmtilegan leik og spennandi keppni. Smellið hér til þess að skrá í mótið á golf.is.

Smellið á "Lesa Meira" til þess að skoða auglýsingu um mótið.

By |04.07.2008|Categories: Fréttir almennt|

Ýmsir molar vegna meistaramóts

Dagana 6. – 12. Júlí fer fram Meistaramót GKG á Vífilstaðavelli. Hér eru nokkur atriði sem vert að taka fram í tilefni af því:

Þar sem að kennarar klúbbsins verða uppteknir við undirbúning og þátttöku í mótinu falla niður allar sumaræfingar þessa vikuna. Æfingar hefjast aftur á fullu mánudaginn 14. […]

By |03.07.2008|Categories: Fréttir almennt|
Go to Top