Vífilsstaðavöllur skartaði sínu fegursta í kvöldsólinni þegar vinkvennamóti GKG og GO lauk undir miðnætti þann 24. júní sl. Eftir jafna keppni voru það GKG konur sem hömpuðu skyldinum að þessu sinni. Þær fengu skjöldinn afhendan við athöfn þar sem glæsilegur hópur kvenna, þeirra sem enn voru á vellinum, fagnaði árangrinum. Tæplega 90 konur voru skráðar til leiks úr báðum klúbbum og alveg ljóst að þetta mót er komið til að vera. Verðlaun voru veitt í ýmsum flokkum og úrslitin urðu sem hér segir:
Smellið á "Lesa Meira" til að sjá lista yfir einstaka vinningshafa
Skráningu í meistaramótið lauk formlega í dag og hefur hún gengið ágætlega. Allaf má þó bæta við og hefur mótstjórn því ákveðið að framlengja skráningarfrestinn um tvo sólarhring, en hann rennur þá út á föstudaginn klukkan 12 á hádegi og er það allra, allra síðasti möguleiki á að skrá sig.
Á morgun er annað Miðvikdudagsmót ársins, en það fyrsta fór fram þann 18. júní síðastliðinn. Mætingin þá það fór langt fram úr væntingum og nú er um að gera að halda bæta hana á morgun. Mótið telur að sjálfsögðu í heildarkeppninni, en bestu […]
Við viljum minna alla félagsmenn á að skráningu í Meistaramót GKG 2008 lýkur núna á miðvikudaginn 2. júlí klukkan 12 á hádegi.
Meistaramótið er skemmtilegasta mót sumarsins og því hvetjum við alla sem vilja leika golf í skemmtilegum félagsskap í (vonandi) frábæru veðri að skrá sig til leiks. Hápunktur sumarsins nálgast […]
International Pairs mótið fór fram í gær, sunnudaginn 29. júní, á Leirdalsvellinum. Mótið var ein af nokkrum undankeppnum sem fram fara á Íslandi og unnu efstu tvö liðin sér inn þátttökurétt á úrslitamótinu á Íslandi, en það fer fram í lok ágúst. Í því móti keppa liðin um að verða […]
Um síðastliðna helgi fór fram 3. stigamótið á Kaupþingsmótaröðinni þetta árið á Garðavelli á Akranesi. Allir bestu kylfingar landsins mættu til leiks og að sjálfsögðu voru margir kylfingar frá GKG í þeim hópi. Bestum árangri okkar kylfinga náðu þeir Sigmundur Einar Másson, í 3.-4. […]
Bleiki Bikarinn - sólstöðumót kvenna var haldið á Vífilsstaðavelli í gærkvöldi. Konurnar hófu leik á öllum teigum klukkan 20:00 og léku golf fram yfir miðnættið í fínasta veðri. Leikfyrirkomulag var Texas Scramble og var glatt á hjalla á keppniskonunum, enda nutu þær bæði golfsins og samverunnar. Mótið er til styrktar Krabbameinsfélags Íslands og var mæting í mótið góð, enda gott að sameina golfið og góðgerðir.
Leikar fóru svo að Auður Björt Skúladóttir og Arndís Eva Finnsdóttir sigruðu nokkuð örugglega, en þær gerðu sér lítið fyrir og spiluðu á 65 höggum nettó. Glæsilegur árangur það.
Jón Ólafsson lést í gær langt um aldur fram, 61 árs að aldri, eftir skamvinn en afar erfið veikindi. Hann var fæddur 15. maí 1947. Jón var kvæntur Ingigerði Eggertsdóttur flugfreyju og eiga þau þrjú börn. Jón var flestum félagsmönnum GKG að góðu kunnur enda var […]
Meistaramót Golfklúbbs Kópavogs og Garðarbæjar verður haldið dagana 6.-12.júlí. Leikið verður á Leirdal. Unglinga- og öldungaflokkar, 3. fl. kv., 4. og 5. fl. karla leika 54 holur og aðrir leika 72 holur.
Skráning hefst fimmtudaginn 19. júní kl.10 og henni lýkur miðvikudaginn 2. júlí kl. 12.
Nokkur atriði sem hafa ber í huga við skráningu: • Skráning fer á fram á golf.is, í ProShop GKG eða með vefpósti • Greiða verður þáttökugjald við skráningu • Þátttökugjald er 4.000 kr fyrir 54 holur og 5.000 kr fyrir 72 holur • Á golf.is er farið á heimasíðu mótsins undir mótaskrá og skráð þar. Er þetta besta leiðin bæði fyrir kylfinga og klúbbinn. • Einnig er hægt að skrá sig á netfangið fannar@gkg.is. Gefa þarf upp nafn, kennitölu, forgjöf, flokk, netfang og kreditkortanúmer fyrir greiðslu þátttökugjalds. Þeir sem ekki nota kreditkort geta lagt inn á reikning klúbbsins: 1121-26-7272. kt. 650394-2089. Senda þarf afrit af innleggi á fannar@gkg.is. Séu þessar upplýsingar ekki fyrir hendi er skráningin ekki tekin gild. • Einnig er hægt að hafa samband við ProShop GKG í síma 897-7773 og skrá sig símleiðis.
Þátttökugjald verður ekki endurgreitt nema gegn framvísun læknisvottorðs.
Leirdalsvöllurinn verður lokaður á meðan keppni stendur en opnar 2 tímum eftir síðasta rástíma. Mýrin verður opin meðan á mótinu stendur. Einungis er heimilt að leika í einum flokki í mótinu. Öldungar 70 ára og eldri, 5.flokkur karla, strákar 13 og yngri og kvennaflokkar leika af rauðum teigum. Lokahóf verður í skála GKG laugardagskvöldið 12.júlí. Nánar auglýst síðar Allar upplýsingar um mótið verða settar hér inn á síðuna. Einnig er hægt að hringja í síma 565-7373 og fá nánari upplýsingar hjá starfsfólki. Fyrirspurnum sem sendar verða á fannar@gkg.is verður einnig svarað.