Bráðabirgðaopnun á æfingasvæði

Lokið er hellulögn á æfingasvæði GKG en eitthvað hafa nýju motturnar tafist í sendingu. Því er búið að ákveða að opna æfingasvæðið til bráðabirgða yfir helgina og jafnvel eitthvað fram í næstu viku, en búist er við að formleg opnun verði svo fyrir næstu helgi.

 

Beðist er afsökunar á töfunum og […]

By |06.06.2008|Categories: Fréttir almennt|

Hin árlegu vinkvenna mót GKG og GO kvenna í júní

Heimsókn GKGkvenna til GOkvenna þriðjudaginn 10. júní n.k. og heimsókn GOkvenna til GKGkvenna þriðjudaginn 24. júní n.k.

 

Um er að ræða tveggja daga vinkvennakeppni milli golfklúbbanna. Sá klúbbur sem fær flesta samanlagða punkta þessa tvo daga vinnur og verður miðað við 10 punktahæstu konur hvorn dag úr hvorum klúbbi. Hámarksforgjöf 36. Einnig verða veittar viðurkenningar til þriggja kvenna sem verða með samanlagða flesta punkta þessa tvo daga og einnig fær sú kona viðurkenningu sem verður með lægsta samanlagða skorið báða dagana.

Smellið á „Lesa Meira“:

 

By |04.06.2008|Categories: Fréttir almennt|

Úrslit kvennamóts 3. júní

Þriðjudaginn 3. júní 2008 var 9 holu golfmót hjá konum í GKG í Vetrarmýrinni. Í mótinu tóku þátt 49 konur og skemmtu sér vel. Af úrslitunum má ráða að konur koma vel undan vetri og bendir allt til góðs golfsumars hjá mörgum.

 

1. Hrefna Gunnarsdóttir, 23 punkta og fékk hún kr. […]

By |04.06.2008|Categories: Fréttir almennt|

Frábær árangur hjá afrekskylfingum GKG

Afrekskylfingar GKG hafa svo sannarlega komið vel undan vetri og hafa spilað afar vel það sem af er sumri. Eins og frægt er orðið þá sigraði Ingunn Gunnarsdóttir fyrsta mót á Kaupþingsmótaröðinni á Hellu í lok maí, auk þess sem hún vann sigur í sínum flokki á fyrsta stigamóti unglinga […]

By |03.06.2008|Categories: Fréttir almennt|

Rás2 Open – Mótið lengt

Vegna mikillar aðsóknar í Rás2 Open sem fram fer þann 6. júní næstkomandi hefur rástímum verið bætt við. Nú er ræst út frá klukkan 07:30 og fer síðasti ráshópur út klukkan 16:00. Eru nú örfá sæti laus svo hver fer að verða síðastur að skrá sig í þetta stærsta opna […]

By |29.05.2008|Categories: Fréttir almennt|

9 holu kvenamót þann 3. júní

3. júní næstkomandi stendur kvennanefndin fyir 9 holu kvennamóti á Mýrinni. Mótið er innanfélagsmót og verða veitt verðlaun fyrir góðan árangur. Mótsgjald er kr. 1.000 og greiðist við upphaf móts með peningum eða með því að leggja inn á reikning kvennanefndar 1121-05-402727, kt. 220550-3979

 

Skráning fer fram á golf.is, smellið […]

By |28.05.2008|Categories: Fréttir almennt|

Lokun æfingasvæðis

Frá og með mánudeginum 26. maí næstkomandi verður æfingasvæði GKG lokað vegna endurbóta sem standa fyrir dyrum. Ætlunin er helluleggja allt sláttursvæðið og hreinsa til og gera aðstöðuna snyrtilegri og betri. Í framhaldi af því verða nýjar mottur fengnar auk kúluþvottavélar sem tengist við boltavélina. Er vonin að eftir þessar […]

By |25.05.2008|Categories: Fréttir almennt|

Ingunn sigraði á Hellu

Fyrsta mót ársins á Kaupþingsmótaröðinni fór fram á Strandavelli á Hellu um helgina. Eins og ávallt tóku margir afrekskylfingar frá GKG þátt og átti GKG til dæmis flesta keppendur í kvennaflokki. Árangurinn hjá okkar fólki var upp og ofan en glæsilegur var hann þó […]

By |25.05.2008|Categories: Fréttir almennt|

Leirdalurinn opnaður í dag

Leirdalshluti Vífilsstaðavallar opnaði í dag fyrir sumarið með pompi og prakt. Haldið var innanfélagsmót í tilefni dagsins og lukkaðist það stórvel, 135 manns mættu og öttu kappi á vellinum sem kemur frábærlega undan vetri. Veðrið var þolanlegt, örlítið kalt en annars vel spilandi. Greinilegt er að sumarið leggst vel í […]

By |24.05.2008|Categories: Fréttir almennt|
Go to Top