Árleg endurskoðun forgjafar

Forgjafarnefnd GKG hefur framkvæmt árlega endurskoðun forgjafar hjá öllum kylfingum í GKG.

 

Endurskoðun þessu er framkvæmd samkvæmt reglum um EGA forgjafarkerfið. Hægt er að nálgast þessar reglur á www.golf.is undir útgefið efni.

 

Við endurskoðun kom í ljós að í GKG voru 991 með skráða forgjöf en þar af voru 331 með óvirka forgjöf. Af þeim sem voru með virka forgjöf fengu 236 kylfingar leiðréttingu á forgjöfinni. 35 fengu hækkun en 201 lækkun.

 

Þeir sem eru með óvirka forgjöf þurfa að skila inn 3 gildum skorum til að forgjöf þeirra verði virk. Á það er minnt að nú geta kylfingar í forgjafarflokkum 3-5 (fgj. 11,5 og upp úr) skilað inn skorum eftir 9 holu hring. Kylfingar með óvirka forgjöf er heimil þátttaka, en geta ekki unnið til verðlauna í mótum sem GKG stendur fyrir.

 

Við birtum hér lista yfir þá kylfinga sem fengu leiðréttingu og eru þeir hvattir til að kynna sér nýju forgjöfina sína. Smellið á „Lesa meira“ til að sjá listann

By |18.05.2008|Categories: Fréttir almennt|

Opnunarmót Leirdals 2008

Næstkomandi laugardag, þann 24. maí, opnar Leirdalshluti Vífilsstaðavallar í fyrsta skipti í sumar. Af því tilefni hefur verið ákveðið að efna til glæsilegs innanfélagsmóts þann sama dag og gefa félagsmönnum því tækifæri á að spila völlinn fyrstir allra. Völlurinn er stórglæsilegur og er […]

By |16.05.2008|Categories: Fréttir almennt|

Áætlun kvennanefndar 2008

Nú hefur kvennanefnd GKG lokið skipulagningu starfs síns í sumar og sett saman glæsilega áætlun fyrir sumarið. Hefst starfið formlega með rauðvínskvöldinu árlega en það fer einmitt fram í kvöld. Síðan er dagskráin þéttskipuð út sumarið.

 

Smellið á "Lesa meira" til að sjá áætlun kvennanefndar 2008

By |16.05.2008|Categories: Fréttir almennt|

Frá vallarstjóra

Til stóð að opna nýrri hluta vallarins um helgina en vallarstjóri hefur ákveðið að bíða með það í viku þar sem ýmis verk eru ókláruð og einnig töluvert af bleytu í sumum brautum.

Stefnt er þá að opnun laugardaginn 24 maí.

GKG og Kópavogsbær […]

Sími í rástímaskráningu

Vegna bilana í símkerfi er ekki hægt að ná sambandi við klúbbinn í síma.

 

Hægt er að hafa samband við rástímaskráningu í síma 897-7773. Beðist er velvirðingar á þeim óþægindum sem þetta kann að valda.

By |10.05.2008|Categories: Fréttir almennt|

Opnun Vífilsstaðavallar

Í dag, laugardaginn 10. maí, opnaði GKG inn á umferð á sumargrín á Vífilsstaðavelli. Ákveðið hefur verið að gefa Leirdalshlutanum eina viku í viðbót til þess að jafna sig eftir veturinn og því er félagsmönnum bent á að fram til laugardagsins 17. maí gildir eftirfarandi kerfi á Vífilsstaðavelli.

    By |10.05.2008|Categories: Fréttir almennt|

    Seinni vinnudagur í dag

    Í gær 6 maí var fyrri vinnudagurinn af tveim sem haldnir verða þetta árið. Góð mæting var þrátt fyrir dapurt veður framan af en um 25 manns mættu og tóku til hendinni.

    Hreinsað var allt rusl á vallarsvæðinu og má nefna að það dugði til að fylla meðal […]

    By |07.05.2008|Categories: Fréttir almennt|
    Go to Top