Frá vallarstjóra

Til stóð að opna nýrri hluta vallarins um helgina en vallarstjóri hefur ákveðið að bíða með það í viku þar sem ýmis verk eru ókláruð og einnig töluvert af bleytu í sumum brautum.

Stefnt er þá að opnun laugardaginn 24 maí.

GKG og Kópavogsbær […]

Sími í rástímaskráningu

Vegna bilana í símkerfi er ekki hægt að ná sambandi við klúbbinn í síma.

 

Hægt er að hafa samband við rástímaskráningu í síma 897-7773. Beðist er velvirðingar á þeim óþægindum sem þetta kann að valda.

By |10.05.2008|Categories: Fréttir almennt|

Opnun Vífilsstaðavallar

Í dag, laugardaginn 10. maí, opnaði GKG inn á umferð á sumargrín á Vífilsstaðavelli. Ákveðið hefur verið að gefa Leirdalshlutanum eina viku í viðbót til þess að jafna sig eftir veturinn og því er félagsmönnum bent á að fram til laugardagsins 17. maí gildir eftirfarandi kerfi á Vífilsstaðavelli.

    By |10.05.2008|Categories: Fréttir almennt|

    Seinni vinnudagur í dag

    Í gær 6 maí var fyrri vinnudagurinn af tveim sem haldnir verða þetta árið. Góð mæting var þrátt fyrir dapurt veður framan af en um 25 manns mættu og tóku til hendinni.

    Hreinsað var allt rusl á vallarsvæðinu og má nefna að það dugði til að fylla meðal […]

    By |07.05.2008|Categories: Fréttir almennt|

    Vinnudagar 2008

    Eins og alltaf að vori þá hefur Guðmundur vallarstjóri skipulagt sjálfboðaliðadag áður en völlurinn opnar. Í ár eru þeir næstkomandi þriðjudag og miðvikudag milli klukkan 17-20.

    Margt er að gera og hvetjum við því alla vaska félagsmenn sem vettlingi geta valdið að mæta og aðstoða við tiltekt á vellinum. Muna að klæða sig eftir veðri! Snarl er í boði að vinnu lokinni og eins og ávallt þá fá þeir sem mæta forgang á rástíma á opnardegi vallarins, sem er laugardagurinn 10. maí þetta árið.

    Í mörg horn er að líta og hefur Guðmundur sett upp verkefnalista sem hægt er að sjá með því að smella á "Lesa meira" hér fyrir neðan.

    Sjáumst öll hress og kát á vinnudögum 2008!

    By |03.05.2008|Categories: Fréttir almennt|

    Sigmundur valinn kylfingur ársins í SLC deildinni

    Sigmundur Einar Másson, afrekskylfingur GKG, bætti enn einni skrautfjöðrinni í hatt sinn er hann var útnefndur kylfingur ársins 2008 í bandarísku Southland Conference háskóladeildinni, SLC. Hann er fyrsti kylfingurinn frá McNeese háskólanum sem hlýtur þessa útnefningu. Sigmundur hefur staðið sig frábærlega á háskólamótaröðinni í […]

    By |01.05.2008|Categories: Fréttir almennt|

    Nýliðakennsla 2008

    Nú er búið að skipuleggja nýliðanámskeið GKG árið 2008. Námskeiðin eru ætluð nýjum GKG-félögum sem eru að stíga sín fyrstu skref í golfinu og hafa ekki fengið fengið forgjöf. Aðrir nýjir félagar sem koma úr öðrum klúbbum og hafa forgjöf þurfa ekki að taka námskeiðið.

     

    Kennslan verður með hefðbundnu sniði og […]

    By |29.04.2008|Categories: Fréttir almennt|
    Go to Top