Félagsfundur 2. maí kl: 20:45
Dómaranámskeið
Héraðsdómaranámskeið GSÍ verður haldið næstkomandi laugardag 28. apríl í Íþróttamiðstöðinni í Laugardal, og hefst klukkan 10:00.
Við hvetjum félaga til að nýta tækifærið til að kynna sér golfreglurnar og aðstoða klúbbinn við dómgæslu. Námskeiðið er opið öllum og er frítt öllum félögum innan GSÍ. Upplýsingar fást hjá Golfsambandi í síma 514 4050 […]
Tilkynning til nýliða GKG
Þá er komið að nýliðanámskeiðum GKG árið 2007 en þau fara fram í maí og er búið að opna fyrir skráningu á þau á heimasíðu klúbbins www.gkg.is undir liðnum umsóknir og hvertjum við þig til að skrá þig sem fyrst.
Nýliðafræðsla GKG hefur […]
HERRAKVÖLD GKG 2007
Hið árlega Herrakvöld GKG fer fram í nýuppgerðum skálanum á morgun miðvikudag. Húsið opnar kl. 19.00 en borðhald hefst kl. 20.00. Veislustjóri verður hinn klúbbkunni Sigurður Hlöðversson og ræðumaður kvöldsins verður Guðmundur Steingrímsson.
Magnað happdrætti – ótrúlegir vinningar eins og kvengolfsett, út að […]
Birgir Leifur kemur í heimsókn !
Birgir Leifur Hafþórsson, atvinnukylfingur úr GKG, ætlar að miðla af reynslu sinni fyrir unga kylfinga í GKG í golfskálanum laugardaginn 14.apríl á milli kl.12-13. Sjá frétt á unglingasíðu GKG.
Öllum börnum og unglingum sem æft hafa með GKG í vetur er boðið […]
Áætlun kvennefndar GKG sumarið 2007
Kvennanefnd GKG hefur sett saman glæsilega áætlun yfir starfsemi sumarsins. Mikið verður um dýrðir hjá konunum og nefna má vinkvennamót, óvissuferð og hið árlega hatta og kjólamót sem dæmi um það sem verður á dagskrá í sumar. Allir viðburðirnir hafa verið skráðir í dagatalið hér á síðunni og þá sem þyrstir að sjá alla áætlunina er bent að smella á "Lesa meira" hér neðst í fréttinni.
Vinaklúbbar GKG sumarið 2007
Búið er að semja um fríspil félagsmanna fyrir sumarið 2007. Sama fyrirkomulag verður á þessum samningum eins og undanfarin ár. Ákveðið var að ganga ekki til samstarfs við Golfklúbbinn Leyni heldur gera árssamning við Golfklúbb Borgarness. Hamarsvöllur mun opna sem 18 holu völlur í sumar og stendur félagsmönnum GKG til […]
GKG semur um fríspil við Golfklúbb Borgarness
GKG og Golfklúbburinn í Borgarnesi hafa gert með sér samkomulag um fríspil félagsmanna GKG í sumar. Samningurinn er með sama fyrirkomulagi og verið hefur undanfarin ár hjá öðrum samstarfsklúbbum GKG.
Golfklúbbur Borgarness sem staðsettur er að Hamri rétt ofan við Borgarnes mun opna […]