Áætlun um starf kvennanefndar GKG sumarið 2007
Kvennanefnd 2007 skipa:
- Bergþóra Sigmundsdóttir, formaður sími: 565-6529, bergthora.sigmundsdottir@tmd.is; bergthorasig@internet.is
- Ásdís Matthíasdóttir, útreikn. skorkorta sími: 553-3524 asdmat@rarik.is
- K. Hrefna Kristjánsdóttir, meðstj. sími: 554-1806 kristinhrefna@torg.is
- Margrét Geirsdóttir, meðstj. sími: 564-2107 maggageirs@simnet.is
- Birna Aspar, ritari sími: 565-8668 birnakba@torg.is
Ný kvennanefnd hefur tekið til starfa. Í stað Guðríðar Jónsdóttur kemur Birna Aspar. Við þökkum Guðríði fyrir frábært starf fyrir okkur konur og fögnum samstarfi við Birnu. Starf kvennanefndar sumarið 2007 verður með hefðbundnum hætti. Kvennaklúbburinn verður með fasta golftíma alla þriðjudaga frá 8. maí til 11. sept., rástímar frá kl. 16.30 – 18.00. Í sumar munum við almennt leika 9 holur á þriðjudögum og leikum því á 9 holu vellinum. Í mótum leikum við 18 holur og verðum þá á stóra vellinum að undanskildu mótinu 29. maí 2007. Þriðjudagstímarnir verða settir upp sem mót til þess að konur geti skráð sig í rástíma í tölvu eða hringt í skálann til að skrá sig. Gæta verður að því að skrá kt., grunnforgjöf og vallarforgjöf. Hægt verður að skrá sig á miðvikudegi eftir hádegi til hádegis á leikdag. Fjórar konur verða saman í holli og tvær skulu vera með grunnforgjöf að 28 og tvær yfir 28. Eins og áður er kvennanefndin með þessu að leitast við að samræma þrjú sjónarmið, þ.e. að konur ráði að einhverju marki með hverri þær spili, reynsla þeirra sem lengra eru komnar skili sér til þeirra sem eru styttra komnar og þá er einnig haft í huga mikilvægi þess að leikhraði okkar verði nokkuð góður.
Greitt er eingöngu fyrir þátttöku í mótum á Vífilsstaðavellinum til m.a. að standa undir kostnaði við verðlaun fyrir árangur og verður gjaldið kr. 1.500, að undanskildu Sólstöðumótinu – Bleika bikarnum, mótsgjaldið á mótinu 29. maí 2007 verður kr. 1.000 og GKG-konur greiða ekki mótsgjald á Vífilsstaðavellinum í vinkvennamóti GKG- og GOkvenna. Við þurfum að greiða vallargjöld í Öndverðarnesi og Urriðavelli þegar við förum þangað. Við munum eins og venjulega semja um lægra vallargjald á þeim völlum.
Móta- og skemmtidagskrá kvennaklúbbsins sumarið 2007:
Föstudaginn 4. maí Rauðvínskvöldið
Þriðjudaginn 8. maí Fyrsti golfleikdagur
Þriðjudaginn 29. maí 9 holu þriðjudagsmót
Þriðjudaginn 19. júní Vinkvennamót GKG og GO, Vífilsstaðavöllur
Föstudagskvöldið 22. júní Opið sólstöðumót kvenna, Bleiki bikarinn
Sunnudaginn 24. júní Vinkvennamót GO og GKG, Urriðavöllur
Þriðjudaginn 3. júlí GKG konur heimsækja GÖ konur
Þriðjudaginn 14. ágúst Óvissuferð
Þriðjudaginn 28. ágúst Hatta- og kjólamót
Laugardaginn 15. september Lokamót kvennaklúbbsins
Fastir golftímar kvenna alla þriðjudaga kl. 16.30-18.00.
Í mótslok fyrirhugaðra móta verður verðlaunaafhending í skála. Lokamót verður 15. september og verða þá afhent afreksverðlaun til þeirrar konu sem náð hefur flestum punktum yfir sumarið samkvæmt innlögðum skorkortum í leiktíma kvennaklúbbsins og framangreindum mótum. Til grundvallar eru lögð fimm bestu skorkortin á 9 holum.
Við munum leitast við að koma fréttum úr starfinu á heimasíðu GKG og myndum á myndasíðu klúbbsins.
Við hefjum tímabilið með hinu árlega “Rauðvínskvöldi” kvennaklúbbsins og verður það eins og að framan greinir föstudaginn 4. maí í golfskálanum.
Kvennanefnd áskilur sér rétt til breytinga á ofanrituðu skipulagi ef nauðsyn krefur.
Með golfkveðju,
Garðabæ 21. mars 2007
Bergþóra Sigmundsdóttir