Úrslit úr Styrktarmóti Bigga & Ottó

Frábær þátttaka var í Styrktarmóti Bigga og Ottó en um 150 kylfingar komu og léku nýja völl GKG, Leirdalinn. Veðrið var ekki uppá marga fiska þá sérstaklega um morguninn og því enn ánægjulegra að sjá hve margir mættu og spiluðu þennan dag.

Við þökkum kærlega fyrir frábæra þátttöku og vonum að allir hafi skemmt sér vel og átt góðan dag á Vífilsstaðavelli. Einnig viljum við koma fram þakklæti til allra sem hjálpuðu til við vinninga og teiggjafir.

kær golfkveðja,

Ottó & Biggi

 

Styrktarmót Bigga og Ottó

Búið er að bæta við rástímum í styrktarmót Biggi og Ottó eða til kl.15.00. Alls er nú um 130 manns skráðir í mótið og fer hver að verða síðastur að skrá sig. Veðurspáinn er fín fyrir morgundaginn og vonumst við því til að sjá sem flesta á morgun með gott […]

Leirdalurinn opinn

Ágætu kylfingar til hamingju með Leirdalinn
Nýr keppnisvöllur í íslensku golfi var opnaður í dag. Leirdalurinn sem hefur verið í smíðum undanfarinn ár var í dag opnaður óformlega til þess einna helst að gefa félagsmönnum í GKG og öðrum kylfingum tækifæri á því að spreyta […]

Hatta- og kjólamót GKG kvenna

 GKG-konur mættu flottar og fínar og með góða skapið á golfvöllinn þriðjudaginn 29. ágúst s.l. Veðrið var bara nokkuð gott en erfiðlega gekk að eiga við hattana í rokkviðunum en við skemmtum okkur vel.

 Margrét Sæmundsdóttir var kjörin best klædda konan með flottan jarðarfarahatt. Margrét fékk einnig flest atkvæði í kjöri um flottasta hattinn.

 Reglur mótsins sáu hins vegar til þess að Bergþóra Sigmundsdóttir fékk afh. viðurkenningu fyrir flottasta hattinn með næst flest atkvæði. Þær fengu einnig snyrtivörur og slæðu.

Í punktakeppninni urðu eftirfarandi úrslit:

By |05.09.2006|Categories: Fréttir almennt|

Undanúrslit í holukeppni GKG

 Þá er ljóst hvaða kylfingar leika í undanúrslitum Holukeppni GKG 2006. Undanúrslitaumferðinni skal vera lokið í síðasta lagi á mánudaginn 11. september Á þriðjudaginn næsta verður því ljóst hvaða tveir kylfingar leika til úrslita í Holukeppninni.

 Þeir sem leika í undanúrslitum eru:

By |05.09.2006|Categories: Fréttir almennt|

Síðasti leikdagur í 8 manna úrslitum holukeppninnar

Síðasti leikdagur í 8 manna úrslitum er mánudagurinn 4. september.

Allir leikir þurfa að klárast í síðasta lagi á þessum tíma. Úrslit og næstu leikir í 4 manna úrslitum verða síðan birt á þriðjudagsmorgun. Leikir í 4 manna úrslitum þurfa síðan að klárast í síðasta lagi mánudaginn 11. september. Úrslitaleikurinn þarf síðan að spilast ekki síðar er mánudaginn 18. september og Holumeistari GKG verður að lokum krýndur á lokahófi Símamótaraðarinnar sem fram fer samhliða Bændaglímunni sem áætluð er laugardaginn 30. september.

Þeir sem spila í 8 manna úrslitum eru hér að neðan:

By |28.08.2006|Categories: Fréttir almennt|

12% kylfinga spilar golf daglega

 Samkvæmt nýafstaðinni könnun hér á GKG.is eru tæp 38% kylfinga sem spila 2-3 sinnum í viku. Fjórðungur þeirra sem greiddu atkvæði spila enn oftar eða 4-6 sinnum í viku. rúm 12% spila golf daglega og um 11% léku golf einu snni í viku eða sjaldnar. Einungis 5% svarenda spilar golf sjaldnar en 1 sinni ´ði mánuði. Hægt er að skoða niðurstöðuna hér að neðan.

 Ný skoðanakönnun er komin á síðuna þar sem spurt er um viðhorf félagsmanna til opnunar Leirdals.

By |03.09.2006|Categories: Fréttir almennt|

Leirdalurinn opnar 6.sept.

 Miðvikudaginn 6.september n.k. mun GKG opna nýja golfvöllinn í Leirdal í nokkra daga. Ákveðið hefur verið að gefa fólki kost á að prófa nýja völlinn áður en veturinn skellur á. Leikinn verður framtíðar 18.holu völlurinn þ.e.a.s. fyrstu þrjár holurnar eins og þær eru í dag, síðan er leikið uppí Leirdal 9 holur, og leikið er síðan 4.,5.,15.,16.,17. og 18. braut. Í vallarvísi GKG eru nýju brautirnar í Leirdal þar sem mynd er af hverri braut auk upplýsinga um lengdir. Ekki hefur farið fram vallarmat á Leirdalsvelli né heldur hefur forgjafarröðun farið fram.
Laugardaginn 9.september mun síðan fara fram styrktarmót Birgis Leifs Hafþórssonar og Ottós Sigurðssonar.

Go to Top