Lokamót GKG-kvenna 16. september

GKG-konur mættu með góða skapið í frábæru veðri á Vífilsstaðavöllinn laugardaginn 16. september s.l. Leiknar voru 18 holur og leikfyrirkomulagið Texas Scramble. Um kvöldið var svo lokahóf GKG-kvenna, verðlaun afhent og borðaður mjög góður matur hjá Rut.

Í punktakeppninni urðu eftirfarandi úrslit:

 

 

 


Á myndinni má sjá öldungasveit kvenna eftir frækilegan árangur á Hellu í sumar

By |25.09.2006|Categories: Fréttir almennt|

Úrslit úr firmakeppni GKG

Það voru 20 fyrirtæki sem tóku þátt í firmakeppni GKG að þessu sinni. Við viljum færa öllum fyrirtækjunum og þáttakendum kærlega fyrir stuðnigginn. Spilaðar voru 18 holur með Texas Scramble fyrirkomulagi og voru úrslit mótsins þessi.

By |25.09.2006|Categories: Fréttir almennt|

Magnús Lárusson sló 296,9 metra

Úrslit í keppninni um högglengsta kylfing íslands fóru fram seinni partinn í dag á 1. teig á Vífilsstaðavelli. Það voru þau Ragna Björk Ólafsdóttir úr GK og Magnús Lárusson úr GKJ sem sigruðu og eru því högglengstu kylfingar Íslands í kvenna og karlaflokki.

Í undanúrslitum kvenna voru úrslitin þessi:
.

By |23.09.2006|Categories: Fréttir almennt|

Búið að loka Leirdalnum

Við viljum minna kylfinga á að nú hefur Leirdal verið lokað eftir að hafa staðið félagsmönnum og öðrum kylfingum opinn í vikutíma. Tæplega 1.100 kylfingar tóku forskot á sæluna og léku Leirdalsvöllinn.

Það er samdóma álit manna að vel hafi til tekist […]

By |14.09.2006|Categories: Fréttir almennt|

Lokamót GKG Kvenna

Lokamót GKG-kvenna verður laugardaginn 16. september n.k. og hefst kl. 10:30. Leiknar verða 18 holur en ef veður verður mjög vont þá leikum við 9 holur. Leikfyrirkomulagið verður Texas Scramble og leika tveir og tveir saman í liði og er um punktakeppni að ræða. Punktar eru reiknaðir út eftir ákveðnum reglum um Texas […]

Kvennagolf 12. september n.k

Kvennagolf 12. september n.k
 
 
Þriðjudaginn 12. september n.k. verður kvennagolfið með þeim hætti að konur geta spilað 9 holur á “gamla” vellinum og verða að mæta og láta kúlu í standinn. Ekki verður hægt að taka frá tíma vegna hins breytta fyrirkomulags á golfvellinum vegna tilkomu Leirdalsins. Verður þetta síðasta þriðjudagskvennagolf sumarsins. Lokamótið verður […]

Tappagötun á GKG

Félagar athugið!

Í dag mánudaginn 12.september var byrjað á tappagötun á velli GKG. Við viljum biðja félaga um að sýna starfsmönnum GKG sérstaka tlitsemi á meðan á þessum framkvæmdum stendur. Þetta er mikilvægur þáttur í undirbúningi vallarins fyrir veturinn og næsta sumar.

Go to Top