Öldungamót

Öldunganefnd GKG efnir til móts sunnudaginn 11. júní frá kl. 9:00. Skráning fer fram á töflu í skála, hægt er að koma á staðinn eða hringja í númer 565-7373 til að skrá sig. Mótsgjald er 1.000 krónur.

By |09.06.2006|Categories: Fréttir almennt|

Hatta- og kjólamóti frestað

Vegna fjölda áskorana hefur verið ákveðið að fresta Hatta- og kjólamóti GKG kvenna sem vera átti sunnudaginn 11. júní n.k. Þann dag eru tvö stór kvennamót sem fjöldi GKG kvenna ætlar að taka þátt í. Kvennanefnd GKG hefur því ákveðið að Hatta- og kjólamót GKG kvenna verði þriðjudaginn 11. júlí […]

Iceland Express

Iceland Express Open fer fram á laugardaginn nk. á Vífilsstaðavelli, nú þegar hafa yfir 100 manns skráð sig en ávallt hefur verið góð þátttaka í mótinu. Glæsilegir ferðavinningar eru í verðlaun og meðal annars golferð til Englands í verðlaun fyrir besta […]

Birkir á Ryder Cup

Íslendingur með í Ryder keppninni!

Birkir Már Birgisson, aðstoðarvallarstjóri hjá GKG á Vífilsstaðavelli, hefur fengið boð um að starfa í kringum Ryder-keppnina sem fram fer á K-Club á Írlandi í september. Hann er fyrsti Íslendingurinn, sem kemur að Ryder-keppninni með þessum hætti. Keppnin um Ryder-bikarinn er milli úrvalsliðs Bandaríkjanna og Evrópu og er keppt um bikarinn annað hvert ár.

Kvennatímar GKG

Við minnum konur í GKG á kvennatímann í dag frá kl.16.30 – 18.00. Glæsileg mæting hefur verið í sumar og það er alltaf gaman að sjá ný andlit. Skráning er uppá töflu í skálanum en hægt er að hringja í síma 565-7373 til þess að skrá sig.

Vinningshafar í Rás 2 Open

Rás 2 Open, fyrsta opna golfmót sumarsins hjá GKG, var haldið á Vífilstaðavelli í gær. Eins og venja er í þessu móti var keppnisfyrirkomulagið Texas Scramble og var fjöldi vinninga í boði en verðlaun voru veitt fyrir efstu fimm sætin auk þess sem þau lið sem enduðu í 10., 20., 25., 50., 60. , 75. , 100. og næst síðasta sæti fengu verðlaun. Einnig var hægt að vinna gífurlegan fjölda aukavinninga, fyrir lengstu upphafshögg og að vera næstur holu í fyrirfram ákveðnum höggafjölda. Athygli vakti að 12.hola vallarins var sú eina þar sem menn þurftu ekki að hafa áhyggjur af mælingum til verðlauna, svo mikið magn verðlauna var gefið.

Almennt var mál manna að mótið hafi tekist vel, enda lék veðrið við þátttakendur og komu mörg lið inn á góðu skori. Reyndar sáu margir sér ekki fært að mæta í verðlaunaafhendinguna og því eru mörg verðlaun enn hérna hjá okkur í klúbbhúsinu og viljum við endilega að þau verði sótt sem fyrst. Til glöggvunar fyrir þá sem ekki vita almennilega hvort þeir hafi unnið sér inn verðlaun þá fylgir hér með þessari frétt listi yfir verðlaunahafa í mótinu. Smellið á "Lesa meira" til að skoða hann.

Mótanefnd og GKG þakka fyrir frábæra þátttöku í mótinu í gær og vonast til að sjá alla aftur að ári.

By |04.06.2006|Categories: Fréttir almennt|

Sigmundur í toppformi

Sigmundur Einar er efstur á Opna austurríska áhugamannamótinu í Schönborn í Austurríki þegar mótið er hálfnað eftir tvo af fjórum hringjum. Hann lék á 75 höggum í dag og 73 höggum í gær og er því samtals á 2 höggum yfir pari og er í efsta sæti í karlaflokki.
Sigmundur lék á 2 höggum yfir parinu í dag með því að fá 14 pör, 3 fugla og einn skolla.

By |03.06.2006|Categories: Fréttir almennt|

Flestir félagsmenn spiluðu Skagann í fyrra

Skv. skoðanakönnun hér á GKG.IS var Garðavöllur á Akranesi vinsælastur hjá félagsmönnum GKG á síðasta sumri. Spurt var "Hvaða vinavöll GKG spilaðir þú oftast í fyrra"

Alls voru það 280 manns sem tóku þátt 33,2% léku Garðavöll oftast. Svarfhólsvöllur á Selfossi varð í öðru sæti með 26,8% atkvæða, Leiran […]

By |02.06.2006|Categories: Fréttir almennt|
Go to Top