Símamótaröðin í dag

Símamótaröðin heldur áfram í dag fimmtudag. Veðrið er nokkuð gott og völlurinn í fantaformi. Glæsilegir vinningar eru í boði sem aðalvinningar en einnig hlýtur vinningshafi í hverju móti fyrir sig inneign í golfbúð klúbbsins en þar verður fjölmargt á boðstólum í sumar. Við hvetjum […]

Heimsóknir á milli GKG og GO kvenna 19. og 27. júní

Um er að ræða tveggja daga vinkvennakeppni milli golfklúbbanna, 19.júní hjá GO og 27.júní hjá GKG.  Sá klúbbur sem fær flesta samanlagða punkta þessa tvo daga vinnur og verður miðað við 10 punktahæstu konur hvorn dag úr hvorum klúbbi. Hámarksforgjöf 36. Einnig verða veittar viðurkenningar til þriggja kvenna sem verða með samanlagða flesta punkta þessa tvo daga. Smellið á "Lesa meira..." til þess að fræðast nánar um skipulagið.

By |14.06.2006|Categories: Fréttir almennt|

Ottó endaði í 2. sæti eftir bráðabana

Ottó Sigurðsson endaði í 2. sætinu eftir bráðabana við Ólaf Má Sigurðsson úr GR eftir að báðir höfðu lokið leik eftir 3. hring á 211 höggum. Þeir léku báðir á 74 höggum í dag.

Ottó sagðist hafa verið að slá vel en púttin hafi ekki alveg ratað rétta leið. Hann var enga síður mjög bjartsýnn á framhaldið enda hafnað í top 5 á tveimur fyrstu mótum sumarsins.

Sigmundur Einar Másson tók sér verðskuldað frí þessa helgi eftir sigurinn á Opna Austuríska en kappinn er búin að vera alveg á full síðan í vetur. Við fylgjumst spennt með gangi mála hjá okkar mönnum en næsta mót í KB-Banka mótaröðinni fer fram í Leirunni eftir tæpar tvær vikur.

By |11.06.2006|Categories: Fréttir almennt|

Ottó fékk 2 erni í röð

Ottó Sigurðsson er sem stendur í 1.-2. sæti eftir fyrsta hring á KB Banka mótaröðinni í Vestmannaeyjum. Hann lék á 69 höggum, 1 höggi undir pari.

Ottó fékk 3 skolla í röð á 1.,2. og 3. holu en náði að koma sér 1 undir par með því að fá 2 erni […]

By |10.06.2006|Categories: Fréttir almennt|
Go to Top