Andrés Davíðsson kennir hjá GKG í sumar

Andrés Davíðsson, PGA golfkennari, mun kenna GKG meðlimum á æfingasvæðinu í sumar. Andrés hefur þjálfað okkar helstu afrekskylfinga undanfarin ár, þá Sigmund Einar og Birgir Leif, en tekur að sér byrjendur sem lengra komna í einkakennslu og paratíma.

Til að fá upplýsingar um verð og lausa tíma er […]

By |23.05.2011|Categories: Fréttir almennt|

Æfingar barna og unglinga verða inni í Kórnum í dag

Vegna leiðindaveðurs þá munum við færa allar æfingar inn í Kórinn í dag.

Við gerum ráð fyrir að æfingar verði aftur komnar út á morgun þar sem spáin er aðeins betri, en vinsamlegast fylgist með tölvupóstinum og/heimasíðunni vegna frétta af staðsetningu æfinga.

Með kveðju,

Þjálfarar GKG

By |24.05.2011|Categories: Fréttir almennt|

Guðjón Henning tryggði sér fyrsta sigurinn á Eimskipsmótaröðinni

Guðjón Henning Hilmarsson gerði sér lítið fyrir og tryggði sér fyrsta sigurinn á Eimskipsmótaröðinni í Vestmannaeyjum s.l. helgi. Guðjón lék seinni hringinn einkar glæsilega, á 65 höggum, fimm undir pari, en fyrri hringinn lék hann á 71 höggi. Guðjón endaði tveimur höggum á undan Stefáni Má Stefánssyni […]

By |14.06.2011|Categories: Fréttir almennt|
Go to Top