Ágætu félagar.

Á fimmtudag verður fyrstu þremur brautum Mýrinnar lokað milli 17:20 – 20:00 vegna spilakennslu nýliða og reglukennsla keppnisfólks okkar. Mega kylfingar sem hefja leik eftir kl. 15 því búast við röskun á sínum leik ef þeir vilja halda leik áfram eftir 18. á Leirdalsvelli.

Við biðjumst velvirðingar á þessari röskun en minnum félaga á mikilvægi þess að taka vel á móti nýjum félögum og hjálpa þeim að kynnast vellinum og góðrar umgengni á honum.