Slide

GKG opnar nýjan golfvöll í Kópavogi – Leirdalsvöllur

Fátt getur komið getur í veg fyrir að nýr glæsilegur golfvöllur verði opnaður á næsta ári. Leirdalsvöllur í Kópavogi sem er viðbót við 18 holu völl GKG á Vífilsstöðum í Garðabæ. Völlurinn sem er eins og nafnið gefur til kynna í Leirdal í Kópavogi liggur frá Hnoðraholti til austur upp Leirdal meðfram Salahverfi í Kópavogi og teygir sig allt upp í Kórahverfi. Völlurinn er í stórbrotnu umhverfi skógræktarsvæðis í hlíðum Rjúpnahæðar og á mjög faglegan hátt sniðinn inn í skógræktarsvæðið og að íbúabyggð í Salahverfi.

By |29.04.2006|Categories: Fréttir, Uncategorized|

Frábær mæting á uppskeruhátíð barna- og unglingastarfsins

Frábær mæting var á uppskeruhátíð barna- og unglingastarfs GKG sem var haldin s.l. þriðjudag, en yfir 100 börn og unglingar mættu. Fyrirséð var að skálinn okkar myndi ekki rúma fjöldann og því fengum við lánaðan veislusal Breiðabliks í Smáranum fyrir hátíðina. 

Hægt er að sjá myndir frá kvöldinu með því að […]

By |23.09.2010|Categories: Fréttir almennt|

Úrslit úr 3.mótinu og lokastaðan í barnamótaröð GKG 2007

Þriðja og síðasta mótið í barnamótaröð GKG fór fram í dag. Alls spiluðu 24 krakkar að þessu sinni, 21 strákur og 3 stelpur. Sigurvegarar í barnamótaröð GKG 2997 voru þau Hinrik Þráinn Örnólfsson í strákaflokki og Gunnhildur Krisjtánsdóttir í stúlknaflokki. Til þess að skoða úrslit mótsins í dag sem og lokastöðuna í sumar smellið á "Nánar ..." hér að neðan. Lokastaðan er reiknuð út árangri í tveimur bestu mótunum. Einnig er rétt að benda á að þegar höggin eru reiknuð þá er að hámarki talið 8 högg fyrir par 3 holu, 9 á par 4 og 10 á par 5 holu.

Við óskum sigurvegurunum að sjálfsögðu til hamingju með árangurinn og öllum keppendunum þökkum við kærlega fyrir þátttökuna og vonast til þess að sjá þau öll aftur á næstu mótaröð. Tímasetning vegna verðalaunaafhendingar verður tilkynnt innan skamms.

By |23.08.2007|Categories: Fréttir af unglingastarfi|

Gríðarleg uppbygging og framkvæmdir hjá GKG

Mikil hugur er í stjórnendum GKG og eru gríðarlega umfangsmiklar framkvæmdir í gangi á Vífilsstaðavelli nú í mesta skammdeginu. Verið er að setja niður sjálfvirkt vökvunarkerfi í allar flatir og við alla teiga vallarins. Áætlaður kostnaður vegna þessara framkvæmda er tæpar 10 milljónir króna og er áætlað að öllum framkvæmdum vegna þessa verkefnis verði lokið fyrir opnun vallarins næsta vor.

By |29.04.2006|Categories: Fréttir, Uncategorized|
Go to Top