Tveir kylfingar úr GKG í íslenska landsliðinu
Íslenska landsliðið sem keppir í Evrópumóti landsliða í Svíþjóð var tilkynnt í morgun. Tveir kylfingar úr GKG eru í liðinu, þeir Sigmundur Einar Másson og Alfreð Kristinsson. Við óskum þeim til hamingju með valið. Derrick Moore, þjálfari hjá GKG er þjálfari landsliðsins. Liðið er skipað eftirfarandi kylfingum:
Alfreð Brynjar Kristinsson GKG
Ottó Sigurðsson úr GKG sem tekur nú þátt í sðínu þriðja atvinnumannamóti í Portúgal náði sér ekki á strik á öðrum hring mótsins í dag þrátt fyrir að hafa verið að eiga nokkuð góð upphafshögg. Járnahöggin voru hinsvegar ekki að gera sig […]
Ottó Sigurðsson endaði á +5 höggum yfir pari eftir fyrsta keppnisdag á Backtee Open sem er hluti af Scanplan Tour og Nordic League mótaröðunum. Mótið sem fer fram í Portúgal er þriðja og síðasta mótið sem Ottó tekur þátt í í þessarri […]
Hole In One mótaröð GKG er nú lokið og fór verðlaunaafhending fram á lokahófinu okkar síðastliðinn þriðjudag og má sjá efstu 3 sætin í hverjum flokki hér að neðan. Hole In One veitti glæsileg verðlaun, gjafabréf að upphæð 12.000, 9.000 og 6.000 fyrir 1.-3. sæti í eldri flokkunum tveimur og síðan La Jolla kylfur fyrir öll sæti í yngsta flokknum. Við þökkum öllum þátttakendum sem og Hole In One fyrir höfðinglegan stuðning við mótaröðina í ár.