Ingunn og Guðjón Ingi með framúrskarandi árangur
Síðastliðinni þriðjudag, 16.september, var haldið lokahóf barna- og unglingastarfs GKG fyrir sumarið 2008. Þar voru veitt verðlaun fyrir árangur sumarins og fyrir mótaraðirnar okkar auk þess sem boðið var upp á pizzu.
Það voru þau Ingunn Gunnarsdóttir og Guðjón Ingi Kristjánsson sem fengu verðlaunin fyrir framúrskarandi árangur að þessu sinni. Ingunn átti frábært tímabil þar sem hún náði m.a. að sigra á fyrsta stigamóti fullorðinna á Hellu í vor. Hún sigraði síðan í 3 stigamótum unglinga, varð íslandsmeistari í sveitakeppni unglinga og varð einnig klúbbmeistari kvenna GKG. Guðjón Ingi varð í öðru sæti í íslandsmóti unglinga í höggleik og spilaði þar fyrsta hringinn á 68 höggum. Hann varð síðan í 2.sæti í sveitakeppni unglinga, varð klúbbmeistari GKG og lækkaði forgjöf sína úr 4.0 í 2.5.
Hér að neðan er svo nánara yfirlit yfir alla þá sem fengu verðlaun fyrir árangur sinn í sumar.
Birgir Leifur Hafþórsson er kominn með þátttökurétt á TCL Classic mótið sem fram fer á Yalong Bay Golf Club í Sanya á Hainan eyju í Kína helgina 15. – 18. mars. Yalong Bay völlurinn er PAR 72 og er 6.540 metra […]
Ottó Sigurðsson hætti leik að loknum fyrsta hring í Portúgal. Ottó spilað afar illa í gær og var þá ekki fullfrískur. Hann ætlaði sér síðan að mæta frískur á teig í morgun en hafði þá versnað og er nú með hita og […]
Um helgina lauk 3. stigamóti ársins í Arion banka mótaröð GSÍ. Leikið var á Strandarvelli við Hellu. GKG kylfingar stóðu sig mjög vel og sigraði Ragnar Már Garðarssson í flokki 15-16 ára, lék á 66 höggum á seinni keppnisdegi og sigraði […]
Fyrsti hringurinn hjá Ottó Sigurðssyni í sínu öðru atvinnumannamóti var ekki alveg að ganga upp í dag. Ottó hóf leik í morgun klukkan rúmlega 9 og lék á 84 höggum eða +12 höggum yfir pari vallarins.