Skráning hafin á sumaræfingar 2009
Nú er hafin skráning á sumaræfingarnar hjá GKG og er hægt að skrá sig með því að smella hér og þar er einnig að finna allar nánari upplýsingar um æfingarnarnar og stundatöfluna. Lokað verður fyrir skráningar 29.maí.
Lagt verður á hóflegt skráningargjald, eða 10.000 […]
Ottó lék á +2 höggum yfir pari í dag að loknum fyrri níu holunum. Hann fékk þrjá skolla, fimm pör og einn fugl og er því á samtals +5 höggum yfir pari.
Ottó Sigurðsson er í 30.-33. sæti að loknum tveimur keppnisdögum á þremur höggum yfir pari.
GKG hefur fengið góða viðbót í þjálfarateymi sitt, en Hlynur Þór Haraldsson hefur verið ráðinn í fullt starf sem þjálfari. Hlynur mun sinna barna- og unglingastarfinu, og sömuleiðis þjálfa meistaraflokka og afrekshópa GKG ásamt Derrick Moore. Þess utan mun hann sinna einkakennslu almennum kylfingum. Hlynur er uppalinn […]
Ottó Sigurðsson er núna að taka þátt í sínu fyrsta atvinnumannamóti í Portúgal. Mótið sem heitir Backtee Open, er liður í Nordic League á Scanplan Tour. Mótið fer fram á Santo Estevao vellinum, rétt við Lissabon og leiknir verða 3 hringir.
Birgir Leifur endaði í 59.-60. sæti á Opna Enjoy Jakarta Astro Indónesíu mótinu sem lauk í gær sunnudag. BIrgir Leifur lék nokkuð stöðugt golf alla keppnisdagana 71-72-74-72=289 en náði ekki að setja niður nægjanlega mikið af fuglum til að ná betri árangri. […]
