Afhending Leirdalsvallar – Golfmót
Á laugardaginn kemur verður haldið Innanfélagsmót í tilefni af formlegri afhendingu Leirdalsvallarins í Kópavogi. Eftir margra ára vinnu hafa bæjarfélögin ákveðið að afhenda GKG Leirdalsvöllinn formlega til umsjónar.
Að loknu mótinu mun hefjast dagskrá á Leirdalsvellinum þar sem bæjarstjórar Garðabæjar og Kópavogs munu undirrita viljayfirlýsingu um áframhaldandi stuðning við klúbbinn og vegna nýs æfingahúsnæðis GKG sem til stendur að hefjast handa við. Undirritunin mun fara fram á 4. flöt Leirdalsvallar við Ásakór í Kópavogi. Þátttakendum mótsins verður boðið að taka þátt í léttum leik á 4. brautinni í Leirdal samhliða þessu. Að þessu loknu munu bæjarfélögin ásamt GKG bjóða til samsætis í skálanum okkar við Vífilsstaðaveg þar sem félagsmönnum verður boðið upp á léttar veitingar
Nú fer að líða opnun hjá okkur í GKG og af því tilefni viljum við minna á Kvennatímana vinsælu en þeir eru nú þegar hafnir á vetrarvellinum. Kvennatímarnir eru á þriðjudögum frá kl.16.30 til 18.00. Skráningarblað verður staðsett uppí skála og eru […]
Félagsskírteini GKG 2006 eru komin og tilbúin til afhendingar. Skírteinin verða send í póst á miðvikudaginn og munu því berast fólki fyrir helgina. Þeir nýliðar sem hafa ekki staðfest greiðslufyrirkomulag þurfa að gera það áður en félagsskírteinin verða afhent.