Bæjarstjórar Garðabæjar og Kópavogs afhentu Golfklúbbi GKG golfvallarsvæðið og undirrituðu um leið viljayfirlýsingu um áframhaldandi stuðning við klúbbinn á 5. teig Leirdalsvallar klukkan 4 í dag.
Golfvallarsvæðið í Leirdal er lokaáfangi við gerð fyrsta 27 holu golfvallar á Íslandi. Hann hefur verið gerður í góðri samvinnu sveitarfélaganna tveggja sem golfvöllurinn nær yfir, þ.e. Garðabæjar og Kópavogs og GKG.


Undirritun samnings milli GKG og bæjarfélagannna Kópavogs og Garðabæjar.
Frá vinstri; Stefán Konráðsson formaður íþrótta og tómstundaráðs Garðabæjar. Gunnar Einarsson bæjarstjóri í Garðabæ, Gunnar I. Birgisson bæjarstjóri í Kópavogi og Guðmundur Oddsson formaður GKG.

Við afhendingu vallarins tóku bæjarstjórarnir Gunnar Einarsson í Garðabæ og Gunnar I. Birgisson úr Kópavogi opnunarhögg vallarins með því að pútta á 4. flötinni á móti núverandi og fyrrverandi formanni þeim Guðmundi Oddssyni og Gunnlaugi Sigurðssyni. Að auki undirrituðu þeir viljayfirlýsingu um áframhaldandi stuðning við klúbbinn og að bæjarfélögin muni styðja við uppbyggingu á nýju æfingahúsi sem áætlað er að hefjast handa við samhliða lagfæringu á æfingasvæði klúbbsins.

Bæjarstjórarnir pútta á 4. flötinni í Leirdal.

Í tilefni afhendingar vallarins stóð GKG fyrir innanfélagsmóti á Vífilsstaðavelli sem hófst kl. 10 í morgun á öllum teigum. Dagskrá á Leirdalsvellinum hófst síðan að móti loknu og var haldin vippkeppni á 4. brautinni þar sem félagsmönnum gafst kostur á að hitta hólma sem er í tjörninni þar. Allir þeir sem voru með í mótinu fengu tækifæri til að hitta hólmann og voru það 5 aðilar sem náðu því. Einn heppinn þátttakandi var síðan dreginn úr potti og hlaut að launum frítt árgjald í GKG árið 2006.


Hér sést kylfingur reyna fyrir sér á 4. brautinni í Leirdalnum.

Leirdalsvöllur er viðbót við 18 holu völl GKG á Vífilsstöðum í Garðabæ. Völlurinn er í Leirdal í Kópavogi, liggur frá Hnoðraholti til austurs upp Leirdal, meðfram Salahverfi í Kópavogi og teygir sig upp í Kórahverfi. Völlurinn er í fallegu umhverfi við skógræktarsvæði í hlíðum Rjúpnahæðar. Áætlað er að Leirdalsvöllurinn opni fyrir kylfinga vorið 2007.