Slide

Breyting á Cintamani Open

Kæri félagi

Vegna dræmrar skráningu í unglingaflokki á Cintamani Open sem hefst á morgun 5. september þá hefur verið ákveðið að fella þann flokk niður og einungis verður keppt í karla- og kvennaflokki.  Annað helst óbreytt og viljum við biðjast velvirðingar á þessum breytingum.

Með kveðju,

Starfsfólk GKG

Eggert Ólafsson Holumeistari GKG 2015

Núna á sunnudaginn spiluðu þeir Örn Jónsson og Eggert Ólafsson til úrslita í holukeppni GKG. Örn byrjaði vel og náði þremur holum á Eggert en á tólftu holu beit Eggert í skjaldarendur og náði á endanum að knýja fram sigur á 17 holu og vann þar af leiðandi 2/1.

Hér að […]

Lokamót/Lokahóf GKG kvenna

Sunnudaginn 6. september
Allt um mótið á golf.is
Lokahófið hefst að móti loknu með mat kl. 18.30 og er fyrir allar konur í GKG hvort sem spilað er í mótinu eða ekki.

Verð aðeins kr. 3.200
Innifalið er mótsgjald, fordrykkur, skemmtiatriði og kvöldverður að hætti Sigga kokks. Sama gjald er fyrir allar konur […]

Minningarmótið stóð undir nafni

Minningarmótið sem er styrktarmót afrekssviðs GKG var haldið núna á Laugardaginn í blíðskaparveðri á Leirdalnum. Þátttaka var með eindæmum góð þetta árið en 140 kylfingar voru skráðir til leiks.

Mótið var að mörgu leiti dramatískt og stóð undir nafni sem minningarmót og styrktarmót afrekssviðs því fyrrverandi, núverandi og verðandi afrekskylfingar komu […]

Örfá sæti laus í Minningarmót GKG 29. ágúst

Núna fer hver að verða síðastur að skrá sig í Minningarmótið til styrktar afreks- og íþróttasviði GKG sem hefst á morgun laugardag. Skráning er enn í gangi á golf.is. Spáin er góð og frábær verðlaun í boði. Kjötsúpa innifalin í keppnisgjaldi. Koma svo fyllum mótið !!!

Minningarmót GKG Laugardaginn 29. ágúst 2015

Minningarmót GKG 29. ágúst 2015 til heiðurs Jóns Ólafssonar(fyrrverandi formann afreksnefndar GKG) og Ólafs Einars Ólafssonar (fyrrverandi framkvæmdastjóra GKG). Mótið er opið öllum og er til styrktar íþrótta- og afrekssviðs GKG. Mótið fer fram þann 29. Ágúst 2015 á Leirdalsvelli. Við viljum hvetja alla félagsmenn um að koma og styðja […]

Úrslit úr 6. móti Kristals mótaraðarinnar

Hér koma úrslitin úr seinasta Kristals mótinu í sumar, en heildarúrslit eru að finna í mótaskrá golf.is.

Veðrið lék við keppendur og margir náðu frábærum árangri og góðri forgjafarlækkun!

Við þökkum fyrir þátttökuna í sumar og minnum á að verðlaun fyrir besta heildarárangurinn úr 4 af 6 mótum verða veitt á uppskeruhátíð […]

Sveit eldri kylfinga tryggði sér sigur og sæti í 1. deild á næsta ári

Sveit GKG eldri kylfinga stóð sig frábærlega um helgina í Sveitakeppni GSÍ 2. deild eldri kylfinga sem fram fór í Sandgerði. Sveitin lagði Leyni í úrslitaleik um 1. sætið 4-1. Með þessum árangri endurheimtu drengirnir sæti sitt í 1. deild að ári. Hér er hægt að skoða úrslit […]

Úrslit úr Mix mótaröðinni sem lauk í gær

Í gær fór fram lokamótið í Mix mótaröðinni og tóku 26 ungir og upprennandi kylfingar þátt. Hér fyrir neðan má sjá nöfn þeirra sem náðu verðlaunasætum, en heildarúrslit er hægt að skoða hér.

Verðlaun fyrir besta árangurinn í mótaröðinni verða veitt á uppskeruhátíðinni okkar sem fer fram í seinustu æfingavikunni okkar […]

Go to Top