Slide

Úrslit úr Mix mótaröðinni sem lauk í gær

Í gær fór fram lokamótið í Mix mótaröðinni og tóku 26 ungir og upprennandi kylfingar þátt. Hér fyrir neðan má sjá nöfn þeirra sem náðu verðlaunasætum, en heildarúrslit er hægt að skoða hér.

Verðlaun fyrir besta árangurinn í mótaröðinni verða veitt á uppskeruhátíðinni okkar sem fer fram í seinustu æfingavikunni okkar […]

Golfskóli GKG: Námskeið hjá Hlöðveri 24.-26. ágúst

Ágætu félagar.

Vegna mikillar eftirspurnar þá bætum við við námskeiðum hjá Hlöðveri. Námskeiðin henta breiðum hópi kylfinga, allt frá byrjendum til mið/háforgjafarkylfinga.  Hópastærð er takmörkuð við fimm manns þannig að hver og einn fær persónulega nálgun.

Hér fyrir neðan má sjá yfirlit fyrir námskeiðin sem eru í boði, en skráning fer fram með því […]

Hatta- og kjólamótið 25. ágúst

Hatta- og kjólamótið 25. ágúst nk.

Hatta- og kjólamót GKGkvenna verður haldið þriðjudaginn 25. ágúst nk. í góðu veðri. Mótið er punktamót með leikforgjöf 40. Leiknar verða 9 holur á Mýrinni. Eingöngu verður leikið með einni kylfu að eigin vali og pútter. Leikið verður á grænum teigum. Við hvetjum ykkur til […]

Úrslit í Firmakeppni GKG

Firmakeppni til fjáröflunar fyrir barna- og unglingastarf GKG var haldin þriðja sinni í dag. Spilaður var tveggja manna betri bolti, stableford.

Alls kepptu 24 lið í mótinu auk þess sem þó nokkur fyrirtæki greiddu fyrir lið, án þess að taka þátt í mótinu. Veitt voru verðlaun fyrir lengsta drive, nándarverðlaun á […]

Úrslit Punktamóts GKG

Nú liggja úrslit fyrsta Punktamóts GKG fyrir. Alls tóku 81 kylfingur þátt í mótaröðinni sem taldi 9 hringi, en fyrsta hring var aflýst vegna veðurs.

Úrslitin urður eftirfarandi:

  1. Óðinn Gunnarsson                                152 punktar að meðaltali 38 punktar á hring
  2. Örn Ottósson                                         151 punktur að meðaltali 37,8 punktar […]

Öldungasveit GKG hafnaði í þriðja sæti!

Öldungasveit kvenna í GKG náði frábærum árangri um helgina í Sveitakeppni GSÍ sem fram fór á Hellishólum. Dömurnar okkar lögðu sveit NK 3-2 í spennandi viðureign um 3. sætið!

Sveit Keilis lagði GR í úrslitum og tryggði sér Íslandsmeistaratitilinn. Til hamingju Keilir.

Sveitina skipuðu eftirfarandi kylfingar:

María Guðnadóttir
Jónína Pálsdóttir
Bergljót Kristinsdóttir
Sigríður Olgeirsdóttir
Elísabet Böðvarsdóttir
Jóhanna Ríkey Sigurðardóttir
Áslaug […]

GKG stúlkur Íslandsmeistarar!

Sveit GKG 15 ára og yngri stúlkna unnu frækilegan sigur í Sveitakeppni GSÍ sem fram fór á Hellu um helgina. Stelpurnar okkar sýndu mikla yfirburði í keppninni og unnu allar sínar viðureignir, fimm talsins. Í hverri viðureign eru leiknir þrír leikir, því alls 15 í heildina, og unnu þær 14 […]

Síðasti hringur mánudagsmótaraðarinnar

Punktamót GKG – staðan fyrir lokaumferðina

Á mánudag, 17. ágúst, fer fram lokaumferðin í Punktakeppni GKG 2015. Staðan fyrir lokahringinn í PDF skjali ásamt Excel skjali með reikniformúlum fyrir áhugasama má sjá með því að smella hér.

Rástímum fækkar hratt eftir hádegið á mánudag en það eru næg laus pláss fyrir […]

Öldungasveitir GKG keppa í Sveitakeppni um helgina

Sveitir eldri kylfinga GKG hefja keppni á morgun í Sveitakeppni GSÍ, og skipa eftirfarandi kylfingar sveitirnar.

Sveit eldri kylfinga kvenna sem keppa á Hellishólum 14.-16. ágúst skipa:

María Guðnadóttir
Jónína Pálsdóttir
Bergljót Kristinsdóttir
Sigríður Olgeirsdóttir
Elísabet Böðvarsdóttir
Jóhanna Ríkey Sigurðardóttir
Áslaug Sigurðardóttir
Baldvina Guðrún Snælaugsdóttir

Liðstjóri: María Guðnadóttir

Sveit eldri kylfinga karla sem leikur á Kirkjubólsvelli hjá Golfklúbbi Sandgerðis dagana 21.-23. […]

Go to Top