Eygló Myrra var rétt í þessu að tryggja sér sigur í flokki stúlkna 18 ára og yngri á Faldo Series Iceland Championship. Hún spilaði hringina 3 á 84, 77 og 79 höggum eða 240 höggum samtals og varð þar með 1 höggi á undan Valdísi Þóru Jónsdóttur úr GL. Þetta er frábær árangur hjá þessari ungu stelpu og tryggir henni þátttökurétt á Faldo Series Final sem haldið verður á Celtic Manor í október.

Helgi Ingimundarson náði síðan 2. sæti í flokki 15 ára og yngri drengja, spilaði á 75, 77 og 81 höggi, samtals 233 högg, og endaði aðeins 1 höggi frá fyrsta sætinu en það var Andri Már Óskarsson úr GHR sem hreppti sigurlaunin þar.

Við óskum þeim báðum til hamingju með árangurinn og vitum fyrir víst að Eygló verður glæsilegur fulltrúi klúbbsins okkar úti í haust.