Félagsferðir GKG slá alltaf í gegn og þessi ferð er upplögð til að lengja sumarið. 

Það eru örfá sæti laus í þessa ferð!

Icelandair VITA Peter Salmon Golf, í samstarfi við GKG býður upp á einstaka félagsferð til Valle Del Este á Spáni.

Flogið verður til og frá Alicante í beinu áætlunarflugi með Icelandair. Val er um 7 eða 10 nátta ferð. Brottför er þann 27. okt kl 08:30 og lent í Alicante kl 14:10. Flugtími heim þann 3. okt er frá Alicante kl. 15:10 og lent í Keflavík kl. 19:00. Flugtími heim þann 6. Nóv er 21:30 og lent í Keflavík kl 01:20.

Valle del Este er í Almeria héraði suður af Alicante og tekur aksturinn frá flugvellinum u.þ.b. 2 klst. Á Valle del Este er frábær 18 holu golfvöllur með ólíkum golfholum og flott æfingasvæði með Top tracer skjám á hverjum bás ásamt heimsklassa stutta spil svæði. Glæsilegt 4* hótel er við golfvöllinn og herbergi snúa að golfvelli/sundlaug með útsýni yfir dalinn.

Góð heilsulind er á hótelinu. https://www.icelandair.com/is-is/pakkaferdir/valle-del-este/

Verð: 7 nætur – 27. okt til 3. nóv
314.450 kr á mann í tvíbýli 348.400 kr í einbýli

10 nætur – 27. okt til 6. nóv
374.450 kr á mann í tvíbýli
429.150 kr í einbýli

Innifalið:
Beint flug til og frá Alicante með Icelandair
Flutningur golfsetts (15kg) og tösku (23kg)
Akstur milli flugvallar og hótels
Gisting í herbergjum með útsýni yfir golfvöll og sundlaug *Fullt fæði
**Ótakmarkað golf með golfbíl
Íslensk fararstjórn
*Fullt fæði er morgun- og kvöldverðarhlaðborð á hótelinu og hádegisverður er í klúbbhúsinu skv. matseðli. **Ótakmarkað golf: Gestir okkar geta spila ótakmarkað golf sér að kostnaðarlausu alla spiladagana. Fastir rástímar eru alla morgna og viðbótar golf er ekki hægt að panta fyrirfram og er háð umferð á vellinum.

Bókunarleiðbeiningar:

  • Til að bóka ferðina notið þennan hlekk: https://www.icelandair.com/is-is/flug/hopabokun/stadfesta-og-greida/ Þá kemur upp síða þar sem beðið er um hópanúmer, notið: 1698
  • Bókunarkerfið leiðir ykkur áfram og þið fyllið inn í þá reiti sem óskað er eftir. Þegar bókun er gerð, er hægt að greiða staðfestingargjald kr. 40,000.- eða greiða upp ferðina.
  • Hægt er að nota Vildarpunkta Icelandair sem borgun í þessa ferð. Eingöngu er hægt að nota eitt kortanúmer fyrir hverja bókun (þegar bókað er á netinu)

 
Ef þið lendið í vandræðum við að bóka eða vantar frekari upplýsingar, vinsamlega hafið samband við okkur hjá golfdeild á golf@vita.is / S: 570-4457