Starfsfólk og stjórn GKG vill minna alla félagsmenn á félagafundinn sem fram fer í skálanum annað kvöld (þriðjudagskvöld). Auglýsingu um efni fundarins má sjá hér neðar á síðunni.

Vegna margra áskoranna hefur fundinum verið frestað um hálftíma, til klukkan 20:30. Er þetta gert til að koma til móts við blóðheita knattspyrnuáhugamenn sem ekki mega missa af leik Manchester United og Barcelona í Meistaradeild Evrópu.

Sjáumst hress annað kvöld.

Stjórn og starfsfólk GKG.