Í byrjun golftímabilsins er gott að fá góða leiðsögn til að koma sér vel af stað inn í golfsumarið og auka þannig líkurnar á góðri forgjafarlækkun!

Á næstunni verða fjölmörg námskeið í boði hjá PGA menntuðum aðilum, þar sem hugað er vel að grunnatriðunum, bæði í sveiflu og stutta spili. Hópastærð er takmörkuð við fimm manns þannig að hver og einn fær persónulega nálgun.

Hér fyrir neðan má sjá yfirlit fyrir námskeiðin sem eru í boði, en skráning fer fram rafrænt með því að smella hér.

Til að sjá uppbyggingu námskeiðanna smellið hér.

Hádegisnámskeið hjá Hauki Má Ólafssyni: Þriggja skipta námskeið (1x per viku). Það fyrsta hefst 19. maí. Verð kr. 9.000

Kvöldnámskeið hjá Hlöðveri Guðnasyni: Fjögurra skipta námskeið (1x per viku). Það fyrsta hefst 25. maí. Verð kr. 12.000

Kvennanámskeið hjá Huldu Birnu Baldursdóttur: Fjögurra skipta námskeið (1x per viku). Það fyrsta hefst 28. maí. Verð kr. 12.000

Kennsla og æfingaboltar eru innifalnir. Kennslan fer fram á æfingasvæðum GKG, mæting ávallt við pallana við áhaldahúsið.

Námskeiðin henta öllum, byrjendum sem lengra komnum.

Fyrstir koma fyrstir fá!

Nánari upplýsingar gefur undirritaður.

Úlfar Jónsson
Íþróttastjóri GKG
ulfar@gkg.is
8629204