Birgir Leifur Hafþórsson atvinnukylfingur úr GKG hélt fyrirlestur fyrir félagsmenn um feril sinn sem atvinnumaður. Birgir Leifur gerðist atvinnumaður fyrir 20 árum og var fróðlegt að heyra hvernig hann hagar sínu undirbúningstímabili fyrir átökin í mótaröðinni, en hann er með þátttökurétt í næstu efstu deild, Challenge mótaröðinni. Birgir Leifur sagði frá á einlægan hátt hvernig ferillinn hefur þróast og hvernig hann kvikar hvergi frá markmiðum sínum að komast í efstu deildina.

Um 70 manns komu og hlýddu á fyrirlesturinn sem var einungis opinn fyrir meðlimi GKG og er hluti af þjónustu við félagsmenn.