Hann er glæsilegur vinningalistinn á opna Fótbolti.net mótinu sem fer fram á Leirdalnum núna á laugardaginn.  Veitt eru verðlaun fyrir 12 sæti, 4 efstu, 7, 10, 15, 19, 27, 35, 49 og 61 sæti. Verðlaun eru veitt fyrir hin ýmsu afbrigði á 14 holum. Teiggjafirnar eru glæsilegar og þá er boðið upp á vipp- og púttleik og að sjálfsögðu verðlaun í boði.

Fyrirkomulagið er líka með eindæmum skemmtilegt en spilað er í tveggja manna liðum  með Texas Scramble leikfyrirkomulagi. Sjá nánar á golf.is.