Fyrsta stigamóti ársins í Íslandsbankamótaröð unglinga lauk í gær hjá Golfklúbbi Þorlákshafnar. Óhætt er að segja að GKG kylfingar hafi komið vel stemmdir til leiks, en árangur okkar fólks var glæsilegur. Þrír sigrar komu í hús af alls sex flokkum! Einnig var gaman að sjá að einungis GR var með fleiri keppendur en við, en alls kepptu 27 fyrir GKG.
Í drengjaflokki 15-16 ára var gríðarlega hörð keppni, en Óðinn Þór fékk fugla á 15., 16., og 17., sem tryggðu honum sigurinn. Alls fékk Óðinn 8 fugla í gær og lék á 68 höggum, við krefjandi aðstæður. Óðinn hefur núna unnið tvö mót í röð, en hann sigraði á lokamótinu í fyrra.
Mikil keppni var milli Særósar og Gunnhildar í flokki 17-18 ára stúlkna. Særós lék mjög vel fyrri hringinn á 76, en Gunnhildur náði henni með því að leika á 77 höggum á öðrum degi. Gunnhildur hafði síðan betur í bráðabana.
Í piltaflokki lék Aron Snær frábært golf á öðrum degi, en 71 högg af öftustu teigum er mjög vel gert. Hann sigraði með miklum yfirburðum, en þegar upp var staðið munaði 9 höggum á honum og Agli, en Ragnar Már endaði í 3. sæti, tveimur á eftir Agli.
Sjá úrslit í öllum flokkum hér fyrir neðan, en heildarúrslit eru að finna á golf.is. Á laugardag var einnig keppt í Grindavík í Áskorendamótaröð Íslandsbanka, en þar kepptu 8 kylfingar frá GKG. Besta árangri náði Róbert Þrastarson, en hann hafnaði í 3. sæti í flokki 14 ára og yngri. Úrslit eru að finna á golf.is
Lokastaða efstu kylfinga í stúlknaflokki, 17-18 ára:
1. Gunnhildur Kristjánsdóttir, GKG 81-77=158 +16
2. Særós Eva Óskarsdóttir, GKG 76-82=158 +16
3. Anna Sólveig Snorradóttir, GK 82-79=161 +19
Lokastaða efstu kylfinga í drengjaflokki, 15-16 ára:
1. Óðinn Þór Ríkharðsson, GKG 74-68=142 par
2.-4. Henning Darri Þórðarson, GK 73-72=145 +3
2.-4. Birgir Björn Magnússon, GK 72-73=145 +3
2.-4. Gísli Sveinbergsson, GK 71-74=145 +3
Lokastaða efstu kylfinga í piltaflokki, 17-18 ára:
1. Aron Snær Júlíusson, GKG 74-71=145 +3
2. Egill Ragnar Gunnarsson, GKG 73-81=154 +12
3. Ragnar Már Garðarsson, GKG 75-81=156 +14
Lokastaða efstu kylfinga í stelpuflokki, 14 ára og yngri:
1. Ólöf María Einarsdóttir, GHD 83-87=170 +28
2. Gerður Hrönn Ragnarsdóttir, GR 89-91=180 +38
3. Sóley Edda Karlsdóttir, GR 92-97=189 +47
Strákaflokkur, 14 ára og yngri:
1. Kristján Benedikt Sveinsson, GHD 71-79=150 +8
2. Arnór Snær Guðmundsson, GHD 74-78=152 +10
3. Aron Atli Bergmann Valtýsson, GK 76-79=155 +13
Lokastaða efstu kylfinga í telpnaflokki, 15-16 ára:
1. Ragnhildur Kristinsdóttir, GR 74-75=149 +7
2. Birta Dís Jónsdóttir, GHD 88-80=168 +26
3.-4. Hafdís Alda Jóhannsdóttir, GK 89-86=175 +33
3.-4. Saga Traustadóttir, GR 82-93=175 +33
Myndir: GSÍ