GKG kylfingar áttu sannkallaða óskabyrjun á fyrsta hring Íslandsmóts unglinga í Vestmannaeyjum og leiða í öllum piltaflokkum mótsins. Aron Snær Júlíusson lék á 72 höggum og leiðir með þriggja högga mun í flokki 14 ára og yngri. Ragnar Már Garðarsson lék á 75 höggum  og deilir efsta sætinu ásamt tveimur öðrum í flokki 15-16 ára. Í flokki 17-18 ára gerði Rúnar Örn Grétarsson sér lítið fyrir og lék á 69 höggum, einu höggi undir pari vallarins, og tók forystuna. Aðstæður í gær voru býsna erfiðar, en vindasamt var í Eyjum. Hægt er að sjá skor kylfinga á www.golf.is.

Mótinu lýkur á sunnudag.

Með kveðju frá Eyjum.