Um helgina lauk þriðja stigamóti ársins í Arion banka mótaröð unglinga, en mótið fór fram hjá Golfklúbbi Reykjavíkur á Korpúlfsstaðavelli. Einnig var haldið þriðja mót ársins í Áskorendamótaröðinni, en þau mót eru fyrir þá sem hafa ekki nægilega lága forgjöf til að taka þátt í Arion banka mótaröðinni. Mikil gróska er greinilega um þessar mundir í uppbyggingarstarfi klúbbana, því þátttaka í þessum tveimur mótaröðum hefur verið gríðarlega mikil.

Hér fyrir neðan má sjá úrslit úr mótunum um seinustu helgi, en árangur okkar unglinga í GKG var mjög góður, og óhætt að segja að GKG kylfingar hafa komið mjög sterkir til leiks í sumar.

Einnig vil ég benda á myndasafn GKG, en þar eru komnar inn nokkrar myndir sem teknar hafa verið á æfingum sumarsins.

Úrslit í Arion banka mótaröðinni á Korpu:

Stigamót GSÍ, 15-16 ára kk
1 Gísli Sveinbergsson GK 74 71 145 1
2 Kristinn Reyr Sigurðsson GR 72 77 149 5
3 Óðinn Þór Ríkharðsson GKG 77 73 150 6

Stigamót GSÍ, 17-18 ára kk
1 Bjarki Pétursson                     GB 75 71 146 2
2 Emil Þór Ragnarsson      GKG 79 73 152 8
3.-6 Daníel Hilmarsson           GKG 76 78 154 10
3.-6 Ragnar Már Garðarsson GKG 75 79 154 10
3.-6 Ísak Jasonarson                    GK 77 77 154 10
3.-6 Oliver Fannar Sigurðsson     GK 73 81 154 10

Stigamót GSÍ, 17-18 ára kvk
1 Sunna Víðisdóttir GR 78 74 152 8
2 Guðrún Pétursdóttir GR 80 82 162 18
3 Anna Sólveig Snorradóttir GK 85 80 165 21

Stigamót 14 og yngri kk
1 Atli Már Grétarsson GK 75 82 157 13
2 Fannar Ingi Steingrímsson GHG 83 75 158 14
3 Kristján Benedikt Sveinsson GA 80 78 158 14

Stigamót GSÍ, 15-16 ára kvk
1 Ragnhildur Kristinsdóttir GR 83 77 160 16
2 Birta Dís Jónsdóttir GHD 82 82 164 20
3 Stefanía Elsa Jónsdóttir GA 81 85 166 22

Stigamót 14 og yngri kvk

1 Þóra Kristín Ragnarsdóttir GK 91 82 173 29

2 Eva Karen Björnsdóttir GR 89 84 173 29
3 Ólöf María Einarsdóttir GHD 88 89 177 33

 

Úrslit í Áskorendamótaröðinni, Grindavík.

Drengjaflokkur, 15-16 ára:
1. Alexander Pétur Kristjánsson GR 79 +8
2. Arnór Harðarson GR 80 +9
3. Albert Garðar Þráinsson GO 84 +13

Telpnaflokkur, 15-16 ára:
1. Þórhildur Kristín Ásgeirsdóttir GKG 95 +24
2. Salvör Jónsdóttir Ísberg NK 106 +35

Strákaflokkur, 14 ára og yngri:
1. Páll Orri Pálsson GS 75 +4 (e. bráðabana)
2. Aron Atli Bergmann Valtýsson GK 75 +4
3.-4. Hlynur Bergsson GKG 76 +5
3.-4. Daníel Ísak Steinarsson GK 76 +5

Stelpuflokkur, 14 ára og yngri:
1. Melkorka Knútsdóttir GK 84 +13
2. Arna Rún Kristjánsdóttir GKJ 90 +19
3. Kinga Korpak GS 91 +20