Greta Björgvinsdóttir, félagi okkar í GKG til margra ára náði draumahögginu í dag í góðum félagsskap sem urðu vitni að högginu.
Gréta sló fallegt högg inn á 9. á Mýrinni “sem lenti inn á flötinni og rúllaði í átt að holu. Bolti hvarf allt í einu í holuna mér til undrunar og gleði”, sagði Greta hæstánægð.
Við óskum Gretu innilega til hamingju með þennan mikla áfanga sem við öll stefnum að sem spilum golf.