GKG hefur fengið góða viðbót í þjálfarateymi sitt, en Hlynur Þór Haraldsson hefur verið ráðinn í fullt starf sem þjálfari. Hlynur mun sinna barna- og unglingastarfinu, og sömuleiðis þjálfa meistaraflokka og afrekshópa GKG ásamt Derrick Moore. Þess utan mun hann sinna einkakennslu almennum kylfingum. Hlynur er uppalinn í GKG og starfaði fyrir nokkrum árum sem leiðbeinandi á barna- og unglingaæfingum félagsins. Hlynur er útskrifaður með réttindi PGA golfkennara úr norska golfkennaraskólanum, og starfaði sem yfirþjálfari hjá Sticklestad golfklúbbnum, sem er um 90 mínútur fyrir norðan Þrándheim í Noregi. Það er mikill fengur fyrir okkur að fá Hlyn til okkar og bjóðum við hann velkominn til starfa.