Sæl öll sömul.

Við tökum okkur frí frá æfingum í kringum jólin og verður frí frá og með 21. des en æfingar hefjast á ný 4. janúar samkvæmt æfingatöflu.

Kórinn er þó alltaf opinn nema rauðu dagana, þannig að þið getið farið og æft ykkur sjálf í fríinu, hvetjum ykkur til að taka nokkrar sveiflur, vippa og pútta.

Við verðum með jólapúttmót barna og unglinga miðvikudaginn 28. des og verður hægt að pútta milli 16-18. Það verður auglýst nánar þegar nær dregur.

Bestu kveðjur og hafið það sem allra best um hátíðirnar.

f.h. þjálfara

Gleðileg jól.

Úlfar Jónsson
Íþróttastjóri GKG