Karlasveit GKG tryggði sér Íslandsmeistaratitil golfklúbba í dag eftir úrslitaleik við GK, en viðureignin endaði 4-1 fyrir GKG. Þetta er sjöundi sigur GKG í efstu deild frá því að fyrsti sigurinn kom árið 2004. Sveit GR hafnaði í þriðja sæti.

Kvennasveitin, sem átti titil að verja, þurfti að láta sér lynda 4. sætið eftir mikla baráttu við sveit GM. Sveit GR sigraði eftir úrslitaleik við GK.

Mikið fleiri upplýsingar um mótið er að finna hér.

Myndir frá mótinu má sjá hér.

Innilega til hamingju með titilinn strákar! 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Fv: Andrés þjálfari, Sigurður Arnar, Hlynur, Kristófer, Aron Snær, Egill Ragnar, Ragnar Már, Ólafur Björn, Bjarki.

Sigursveit GR í kvennaflokki

Kvennasveit GKG. Arnar Már þjálfari, Ástrós, Ingunn, Hulda Clara, Eva María, Árný Eik, Anna Júlía, María Björk, Ingunn