Kjartan Dór Kjartansson er kominn í 8 manna úrslit eftir að hafa lagt Þórð Rafn Gissurarson 3/2 í 16 manna úrslitum í morgun.

Kjartan á rástíma eftir hádegið klukkan 13:49 þar sem hann keppir við Ólaf Má Sigurðsson úr GR um það hvor þeirra fer í undanúrslit Íslandsmótsins í holukeppni 2006

Fyrrverandi Íslandsmeistarinn Ottó Sigurðsson tapaði sínum leik gegn Hirti Brynjarssyni 5/3 og Sigmundur Einar Másson Íslandsmeistari í höggleik tapaði fyrir Erni Ævari Hjartarsyni 4/3.