Dagana 21.-23.júlí fer fram Íslandsmót unglinga í holukeppni á golfvelli GKG. Alls eru um 170 keppendur skráðir til leiks en þeir leika undankeppni á föstudaginn þar sem 16 efstu í hverjum flokki komast áfram í holukeppni. Það má búast við æsispennandi keppni alla dagana og hvetjum við félagsmenn til þess að koma og horfa á okkar efnilegustu kylfinga spreyta sig á Vífilsstaðavellinum. Völlurinn verður því lokaður mikinn hluta af helginni en félagsmenn geta spilað á öllum völlum innan GSÍ með 50% afslætti. Við minnum einnig á okkar vinavelli þar sem félagsmenn leika frítt, sjá nánar hér.