Lokamót GKG-kvenna verður laugardaginn 16. september n.k. og hefst kl. 10:30. Leiknar verða 18 holur en ef veður verður mjög vont þá leikum við 9 holur. Leikfyrirkomulagið verður Texas Scramble og leika tveir og tveir saman í liði og er um punktakeppni að ræða. Punktar eru reiknaðir út eftir ákveðnum reglum um Texas Scramble.
 
Skráning fer fram á golf.is og hefst mánudaginn 11. september n.k. og lýkur fimmtudaginn 14. september n.k. Konur geta valið með hverri þær spila en þær sem ekki hafa ákveðið með hverri þær spila finna meðspilara á mótsstað.
 
Í mótslok borðum við saman og hefst matur kl. 18:30. Gert er ráð fyrir að við komumst heim til að skipta um föt fyrir lokahófið. Óskað er eftir skemmtiatriðum og æskilegt er að skemmtikraftar láti formann vita fyrir lokahófið.
 
Á matseðlinum verða grísalundir með piparsósu og öðru meðlæti.
 
Mótsgjald er kr. 1.500 og innifalið er mótsgjald og kvöldverður.
 
Veitt verða verðlaun fyrir 3 fyrstu sætin í punktakeppni, næst holu á fjórum par 3 holum og lengsta brautarhögg á braut á 3. braut. Einnig verða veitt verðlaun til þeirrar konur sem hefur fengið flesta punkta á 5 bestu 9 holum hennar í kvennagolfinu í sumar.
 
Hittumst allar laugardaginn 16. september n.k. og skemmtum okkur saman.
 
Golfkveðjur Kvennanefnd GKG.