Þá er púttmótaröð barna og unglinga í GKG lokið, en seinasta mótið fór fram s.l. laugardag í Kórnum. Strax að loknu móti var verðlaunafhendinga fyrir besta samanlagðan árangur í 5 af þeim 9 mótum sem haldin voru í vetur. Góð mæting var og eftir verðlaunaafhendinguna gátu viðstaddir gætt sér á nammi og gosi, en einnig voru í boði ávextir og safar.

Sex kylfingar mættu í öll mótin og fengu þau öll einn golfbolta sem viðurkenningu fyrir góða mætingu, þau voru: Sigurður Arnar Garðarsson, Hilmar Örn Valdimarsson, Gunnar Þór Ásgeirsson, Máni Freyr Oscarsson, Eydís Eir Óttarsdóttir og Særós Eva Óskarsdóttir.

Úrslit í heildarkeppninni er hægt að sjá hér fyrir neðan, en úrslit allra keppenda er hægt að sjá hér. Ósótt verðlaun er hægt að nálgast í golfskálanum hjá Guðrúnu á skrifstofutíma.

Nokkrar myndir voru teknar og er hægt að sjá þær hér.

Öllum keppendum þökkum við fyrir góða mætingu í vetur, vonandi hafa allir skemmt sér vel við að mæta á laugardögum og hittast og taka pútthring.

Minnum á að æfingar áfram í Kórnum fram til föstudagsins 4. maí, en eftir það færast æfingarnar út á æfingasvæði GKG. Mæting verður við áhaldahúsið hjá pöllunum, og helst æfingataflan óbreytt þangað til sumaræfingar hefjast 11. júní. Tilkynnt verður bráðlega hvenær hægt verður að skrá á sumaræfingarnar.

Bestu kveðjur og takk fyrir veturinn!

Úlfar, Hlynur, Derrick og Guðjón.

 

12 ára og yngri stelpur Skor e. 5 bestu hringina
1. Hulda Clara Gestdóttir 149
2. Herdís Lilja Þórðardóttir 159
3. Hafdís Ósk Hrannars 163
12 ára og yngri strákar
1. Sigurður Arnar Garðarsson 131
2. Magnús Friðrik Helgason 139
3. Viktor Markússon 139
13 – 15 ára stúlkur
1. Ásthildur Lilja 140
2. Bergrós Fríða Jónasdóttir 146
3. Elísabet Ágústsdóttir 147
13 – 15 ára strákar
1. Kristófer Orri Þórðarsson 125
2. Þorsteinn Ingi Júlíusson 127
3. Hilmar Leó Guðmundsson 133
16 – 18 ára piltar
1. Emil Þór Ragnarsson 124
2. Ragnar Már Garðarsson 138
3. Sverrir Ólafur Torfason 138
16 – 18 ára stúlkur
1. Særós Eva Óskarsdóttir 127
2. Helena Kristín Brynjólfsdóttir 153
3. Þórhildur Kristín Ásgerisdóttir 160