Veislan er hafin

Það er orðin hefð fyrir því að Guðmundur Oddsson fyrrverandi formaður GKG slái fyrsta höggið á Meistaramóti GKG og var engin undantekning á því í ár. Veðrið getur vart verið betra fyrir golfleik og eru horfurnar góðar fyrir vikuna.

Undanfarin ár hefur verið minnkun á fjölda þátttakenda en í ár snerist þróunin við og eru þátttakendur 364 miðað við 314 í fyrra aukningin er 16%.

Sú ánægjulega breyting er að eiga sér stað að hlutfall kvenna er að aukast verulega en í fyrra var hlutfallið 74% karla og 26% konur en í ár er það 68% karlar og 32% konur.

Það verður stuð og stemning hjá okkur á öllum dögum. Við verðum með nándarverðlaun og sérstök verðlaun fyrir þann aðila sem spila á flestum punktum á hverjum degi mótsins.

Að auki verður Vignir Vert í Mulligan með egg og Bacon í morgunverð og smelllir svo í sinn margrómaða brunch upp úr kl. 10:00. Hvetjum við alla til að koma og taka þátt í stemningunni, hvort sem þeir séu að taka þátt í mótinu eða ekki.

Mótsstjórn