Leirdalur opnar á fimmtudag, rástímaskráning er þegar hafin fyrir sumarið!
Vellirnir eru viðkvæmir og biðjum við kylfinga um að ganga vel um, gera við öll boltaför sem þið sjáið og setja torfur í kylfuför.
Hér fyrir neðan eru mikilvægar upplýsingar sem við biðjum ykkur að fara yfir og kynna ykkur.
Reglur um skráningu eru eftirfarandi:
- Félagsmenn hafa fjögur “rástímatóken” hverju sinni. Sjá upplýsingar um skráningarreglurnar hér.
- Utanfélagsmenn geta skráð sig með tveggja daga fyrirvara, þ.e. kl. 21 á mánudagskvöldi er hægt að skrá fyrir miðvikudag.
Manstu ekki lykilorðið, auðkennið þitt eða hvernig á að skrá rástíma?
- Kynntu þér nýtt útlit og virkni Golfbox appsins Mitt golf. Sjá upplýsingar úr Fréttabréfi okkar 22. apríl hér.
- Sjá gagnlegar upplýsingar varðandi týnt lykilorð hér.
- Smelltu hér til að rifja upp hvernig á að skrá sig á rástíma
- Margt fleira gagnlegt úr GolfBox hjálpinni hér.
Höldum góðum leikhraða.
- Á þétt setnum golfvöllum er mjög mikilvægt að halda góðum leikhraða.
- Við spilum “Ready golf” – fyrstur kemur fyrstur slær.
- Höldum í við hollið á undan okkur.
- Verum tilbúin, göngum rösklega, hámarksleitartími er 3 mínútur.
- Veldu þér teig sem hæfir getu þinni og eykur skemmtanagildið, sjá nánar með því að smella hér.
- Öflugt vallareftirlit verður í sumar sem áður.
Göngum vel um vellina okkar.
- Gerið við öll boltaför sem þið sjáið.
- Gangið vel um glompurnar og sléttið sandinn vandlega með hrífunum.
- Rusl, tyggjó, sígarettustubbar og baggar eiga að fara í ruslið, þeir sem verða uppvísir af því að henda slíku út á velli fá áminningu og tímabundna frávísun úr klúbbnum eftir annað brot.
- Sýnum fordæmi og tínum upp allt rusl sem við sjáum og setjum í rusladalla.
Golfhermarnir – sumarkort
- Við hvetjum félagsmenn að æfa æfa vel og/eða hita upp í golfhermum GKG. Við bjóðum upp á sumarkort í hermana á kr. 17.400 sem gildir til 30. september. Einnig 12 skipta klippikort á kr. 7.500.
Eftirlit með mætingu á rástíma
- Það má búast við því að það verði mikið að gera hjá okkur í sumar og að vellirnir verði mikið bókaðir.
- Í ljósi þess verður öflugt eftirlit með því að kylfingar mæti á skráða rástíma, það er dapurt að sjá laus pláss í hollum sem eru fullbókuð.
- Munið að staðfesta rástíma með QR kóða sem staðsettur er á báðum hæðum Íþróttamiðstöðvarinnar.
- Fyrsta brot er áminning, annað brot er viku frávísun frá völlum GKG.
- Sjá nánar á heimasíðunni hér.
Njótum samverunnar í sumar, hlökkum til að sjá ykkur á vellinum og umfram allt höfum gaman af þessu!
Staffið