Niðjamót GKG fer fram laugardaginn 1.júlí n.k. Niðjamótið er styrktarmót unglinganefndar GKG og rennur allur ágóði af því í ferðasjóð unglinganna.

Þetta er punktamót þar sem spilað verður eftir greensome fyrirkomulagi en þar eru tveir og tveir saman í liði. Báðir slá á teig en síðan velur lið annan boltann og spilar honum til skiptis, þannig að sá sem ekki á upphafshögg sem valið er slær annað högg og síðan til skiptis. Forgjöf reiknast 60% af leikforgjöf þess sem hefur lægri forgjöf og 40% af leikforgjöf þess sem hefur hærri forgjöf. Hvert lið verður að vera þannig samsett að annar leikmaður leikur með barni sínu, barnabarni eða tengdabarni. Mótið er innanfélagsmót, en þó er heimilt að annar leikmaður í liði sé meðlimur í öðrum golfklúbbi.

Glæsilegir vinningar eru í boði, þar á meðal farmiði fyrir tvo með Iceland Express fyrir fyrsta sætið. Veitt eru verðlaun fyrir þrjú efstu sætin og nándarverðlaun eru veitt þeim sem er næstur holu á öllum par 3 holum vallarins. Skráning er hafin á golf.is og mótsgjald er 4.500.– fyrir hvert lið og innifalið í því er súpa og brauð fyrir alla í boði Sparisjóðs Kópavogs. Ræst verður út af 1. og 10. teig frá kl.08:00.