Niðjamót GKG fór fram laugardaginn 1. júlí og gekk svo vel sem verða má. Tveir voru saman í liði þar sem annar var afkomandi hins og var leikin Greensome punktakeppni. Fjörutíu lið mættu til leiks sem er helmingsfjölgun frá fyrsta mótinu í fyrra. Ágóði af mótinu rennur óskiptur í ferðasjóð afreksunglinga GKG. Veitt voru verðlaun fyrir fyrstu þrjú sætin, auk fjölda annarra verðlauna. Tvö lið voru jöfn með flesta punkta. Mótsstjórn ákvað að láta þau reyna með sér og slá af 10. teig inn á 18. flöt. Síðasta höggið í þeirri keppni endaði næst holu en það sló Bjarki Freyr Júlíusson og tryggði liði sínu þar með Afa og ömmubikarinn sem er farandbikar, auk ferðavinnings fyrir 2 með Iceland Express.
Úrslit urðu þessi:
1. Bjarki Freyr Júlíusson og Karl Júlíus Sigurgíslason – 42 punktar
2. Gestur Gunnarsson og Kristín Þórisdóttir – 42 punktar
3. Ragnar Þór Ragnarsson og Emil Þór Ragnarsson – 41 punktur
4. Valgerður Hrund Skúladóttir og Björk Sigurjónsdóttir – 40 punktar
5. Gunnar Snær Gunnarsson og Gunnar Árnason – 39 punktar
6. Guðjón Ingi Kristjánsson og Kristján Guðjónsson – 39 punktar
Nándarverðlaun hlutu:
2. hola Ragnar Þór Ragnarsson – 2,02 metrar
4. hola Gunnar Árnason – 1,57 metrar
9. hola Helgi Ingimundarson – 1,50 metrar
11. hola Lovísa K. Sigurjónsdóttir – 2,75 metrar
13. hola Sigurður Egilsson – 0,42 metrar
17. hola Bjarni Rúnar Jónasson – 1,86 metrar
Að lokum voru dregnir út fjölmargir vinningar úr skorkortum viðstaddra.
Unglinganefnd GKG þakkar öllum stuðningsaðilum en þó fyrst og síðast þátttakendum og hlakkar til að sjá þá alla að ári.