Kæru félagar.

Vallarmatsnefnd GSÍ hefur endurmetið vellina hjá okkur og gefið út nýtt vallarmat. 

Um lítilsháttar breytingar er að ræða hvað varðar Mýrina. Sem dæmi þá fær karlkylfingur með 19,5 í grunnforgjöf nú sem fyrr 19 í vallarforgjöf af teigum 47. Kona með 19,5 í grunnforgjöf fær áfram 19 í vallarforgjöf af teigum 41. Sem sagt engin breyting á vallarforgjöf í þessum tilvikum.

Hinsvegar eru meiri breytingar á vallarmati Leirdalsins, en ef við tökum sömu dæmi, þ.e. karlkylfingur með 19,5 í grunnforgjöf fær núna 20 í vallarforgjöf af teigum 54. Eldra vallarmatið gaf 22. Kona með 19,5 í grunnforgjöf fær núna 22 í vallarforgjöf af teigum 47 en fékk áður 23.

En hvað liggur að baki breytingunum?

Árið 2025 voru metnir fjórir teigar fyrir karla og þrír teigar fyrir konur á Leirdalsvelli. Síðasta heildarmat á Leirdalsvelli fór fram árið 2017. Árið 2020 breyttist forgjafarkerfið verulega og upp voru tekin svonefnd vítasvæði. Erfitt er að bera saman mat á milli tímabila þar sem mismunandi matsreglur giltu. Helstu breytingar á Leirdalsvelli milli matsára voru að árið 2025 hafði karginn verið sleginn niður fyrir tvær tommur og féll þá um matsflokk, nákvæmari upplýsingar um vind lágu fyrir sem leiddu til þess að ekki var gert ráð fyrir eins mikilli uppbót á lengd vallar árið 2025, auk fleiri atriða sem leiddu til lækkunar á vallarmati og vægi. Þá höfðu bláir og rauðir teigar styst nokkuð frá fyrra mati.

Hvernig verður þín vallarforgjöf eftir þessar breytingar?

Skoðaðu nýjar forgjafartöflur hér.