Á morgun hefst Finnish International Junior mótið á  Cooke vellinum í Vierumaki í Finnlandi. Um er að ræða stúlkna og drengjamót í flokkum 15-16 ára og 14 ára og yngri. Alls taka 102 Finnar og 54 útlendingar þátt, en Ísland er með flesta keppendur utan Finnana. Einnig koma keppendur frá Þýskalandi, Svíþjóð, Belgíu, Danmörku, Tyrklandi og víðar.

Óðinn Þór Ríkharðsson og Kristófer Orri Þórðarson úr GKG eru meðal keppenda og verður gaman að fylgjast með okkur mönnum í mótinu, en þeir hafa staðið sig mjög vel á Íslandsbankamótaröðinni í sumar.

Alls taka tólf keppendur þátt frá Íslandi. Aðstæður eru mjög góðar, frábær keppnisvöllur með hraðar flatir.

Í fyrra náði Fannar Ingi Steingrímsson 3. sæti í 14 ára og yngri flokknum og Birgir Björn Magnússon og Gísli Sveinbergsson höfnuðu meðal 10 efstu í flokki 15-16 ára.

Hægt er að fylgjast með skori keppenda hér.